Íslenskir framhaldsskólanemar allt of þungir: „Mjög illa á sig komnir hvað varðar holdafar“
Íslenskir 18 ára framhaldsskólanemar eru „mjög illa“ á sig komnir hvað varðar holdafar. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós. Þar kemur einnig fram að hreyfingu þessa hóps er verulega ábótavant og þeir sem eru í verknámi eru almennt í lélegra formi en bóknámsnemar.
Rannsóknina gerðu þau Sigurbjörn Árni Arngrímsson, Erlingur Birgir Richardsson, Kári Jónsson og Anna Sigríður Ólafsdóttir. Niðurstöður hennar eru birtar í nýútkomnu hefti Læknablaðsins.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhættuþætti efnaskiptasjúkdóma meðal 18 ára framhaldsskólanema og bera saman nemendur í bók- og verknámi.Þátttakendur (147 drengir og 130 stúlkur) voru valdir með slembiúrtaki.
Dagleg hreyfing þeirra var mæld með skrefamæli og úthald með hámarkssúrefnisupptökuprófi á hlaupabretti. Holdafari var lýst með mælingum á hæð, þyngd, mittismáli og líkamsþyngdarstuðli (body mass index, BMI) og hlutfall líkamsfitu var mælt með tvíorku röntgengeislagleypnimælingu.
Rannsóknin leiðir í ljós að 23,3 prósent nemenda eru skilgreindir of þungir eða of feitir. Heldur hærra hlutfall drengja flokkaðist sem of feitir, á meðan mun stærri hópur stúlkna var talinn of léttur.
Þá voru 20 prósent nemenda með of mikið mittismál og um helmingur greindist með of hátt hlutfall líkamsfitu.
Úthald 18 ára framhaldsskólanema er að jafnaði gott, en hreyfingu er engu að síður verulega ábótavant. 16 prósent nemenda flokkuðust með slakt eða mjög slakt úthald og þar voru stúlkur í miklum meirihluta. Einungis þriðjungur nemenda náði ráðlagðri daglegri hreyfingu, en mælst var til þess að þeir gengu meira en 10 þúsund skref á dag.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að íslenskir 18 ára nemendur í framhaldsskólum eru mjög illa á sig komnir hvað holdafar varðar, hvort heldur sem þeir eru skoðaðir út frá BMI- eða hlutfalli líkamsfitu,
segir í rannsókninni. Enn fremur kom í ljós að nemendur í verknámsskóla höfðu slakasta úthaldið, hreyfðu sig minnst, mældust með hæst hlutfall líkamsfitu, mesta mittismálið og hæsta blóðþrýstingin.
Í rannsókninni segir að þetta sé í takt við niðurstöður norskrar rannsóknar sem sýnir að verknámsnemar höfðu marktækt lakara úthald en bóknámsnemar. Þá er á það bent að verknámsnemar eru ólíklegri til að taka þátt í íþróttum sem gæti gefið til kynna almennt minni áhuga á hreyfingu meðal þeirra.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is