Fimmtudagur 03.05.2012 - 15:31 - Ummæli ()

Málþófið hafið? Þingmenn eyddu hálftíma í að ræða hvort þeir ættu að vinna fram á kvöld

Alþingismenn gáfu sér góðan hálftíma í að ákveða hvort þingfundur ætti að standa fram á kvöld eða ekki. Forystumenn ríkisstjórnarinnar saka stjórnarandstöðuna um að halda þinginu í gíslingu á meðan meirihlutinn er sakaður um óvönduð vinnubrögð. Svo gæti farið að þingið starfi fram í júlí.

Það er orðinn fastur liður í þingstörfum um vorin að gagnrýna meirihlutann fyrir að „hrúga inn“ málum á Alþingi síðustu daga vorþings. Sá háttur var hafður á þegar atkvæðagreiðsla fór fram um tillögu forseta hvort halda ætti þingstörfum áfram fram á kvöld.

Þingmönnum lá greinilega mikið á hjarta um þessa tillögu og tóku þeir 24 sinnum til máls til að ræða hana.

Ragnheiður Elín Árnasdóttir hóf umræðuna líkt og í gær. Sagði hún að ef mönnum væri alvara með að klára mál sem koma fyrirtækjum og heimilum til góða ættu menn ekki að halda þingfundi fram á nótt, heldur að forgangsraða.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir þetta og sagði þá sem sökuðu stjórnarandstöðuna um að vera með þingið í gíslingu, ættu að kynna sér tölulegar staðreyndir um það hvenær mál eru að koma fram á þingi. Þessir sömu þingmenn ættu svo að velta fyrir sér hversu sanngjarnt það er að þingið afgreiði öll mál án allra málalenginga eins og „stimpilpúði fyrir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur“.

Ég get ekki vorkennt mönnum í málþófi að vera með málþóf á kvöldin,

sagði Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann segir mörg mikilvæg mál liggja fyrir þinginu og því ættu þingmenn að taka sér tíma til að klára þau mál. Þingið myndi þá starfa fram í júní og því frestað í kringum forsetakosningar. Að þeim loknum yrði þingið kallað saman aftur og málin kláruð.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sakaði stjórnarandstöðuna um bellibrögð.

Það er öllum ljóst að þetta þing er í miklum hægagangi og það er mikið málþóf í gangi. Og stjórnarandstaðan, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, hefur eitt markmið. Það er að koma í veg fyrir að þau mál sem ríkisstjórnin vill að gangi fram á þessu þingi nái ekki fram að ganga. Þessir flokkar sem ég nefndi hafa það eitt markmið að koma þessari ríkisstjórn frá.

Jóhanna minnti á að síðastliðinn mánuð hafi einungis 10 mál verið afgreidd frá þinginu.

Ég vil líka nefna það að ef að menn ætla að klára hér 31. maí, eins og dagskráin segir til um, þá er það vel hægt. Ef það er vilji fyrir hendi, en ef við þurfum að vera lengur og fram í júní, þá gerum við það. Jafnvel fram í júlí,

sagði hún í hvössum tón. Vigdís Hauksdóttir svaraði:

Hér áðan birti hæstvirtur forsætisráðherra sitt eigið andlit þegar hún skók hnefann og var hér með hótanir…En það er fyrir þrjósku forsætisráðherra að þetta er komið í þetta ferli núna…Þrjóska foræstisráðherra á sér engin landamæri.

Vigdís sagði hótanir ekki virka á þingmenn Framsóknarflokksins sem eru tilbúnir til að starfa á þingi sleitulaust fram að næstu kosningum.

Hér er búið að slátra upp undir hálftíma í umræðu um eina atkvæðagreiðslu,

sagði Steingrímur J. Sigfússon sem sagðist hugsi yfir þeim svip sem stofnunin bjóði upp á og hvernig þingmenn „rægja sinn eigin vinnustað“.

Það er ekki hægt að kalla þetta sjálfsgagnrýni sem þingið er að ástunda hér. Þetta er sjálfsníð.

Steingrímur sagði að svo virðist sem þingmenn átti sig ekki á vinnuferli mála á Alþingi. Vorið sé „uppskerutími“ og þannig hafi það verið áratugum saman. Við það sé ekkert að athuga, enda ferlið innbyggt í kerfið…

…nema það eitt að núverandi stjórnarandstaða virðist ganga langra en ég held að maður hefur nokkurn tíma áður séð að halda þinginu í hreinni gíslingu og stoppa hér allt. Og þá gerir stjórnarandstaðan það, og þá ber hún líka ábyrgð á því.

Niðurstaða allra þessara umræðna var sú, að samþykkt var að teygja þingfund fram á kvöld.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is