Fimmtudagur 03.05.2012 - 13:51 - Ummæli ()

Persónuvernd að drukkna í erindum – Getur ekki sinnt verkefnum með lögbundnum hætti

Persónuvernd getur að öllu óbreyttu ekki sinnt verkefnum sínum með lögbundnum hætti.

Erindum til Persónuverndar hefur fjölgað mjög á liðnum árum á sama tíma og starfsmönnum hefur fækkað. Búast má við „umtalsverðum“ töfum á afgreiðslu mála á síðari helmingi þessa árs.

Þetta kemur fram á vef Persónuverndar. Þar segir að það sem af er þessu ári hafi 612 ný mál verið skráð hjá stofnuninni. Til samanburðar voru nýskráð mál þann 1. maí 2008 alls 361. Er því um 75 prósent aukningu að ræða á fjórum árum.

Á sama tíma hefur starfsmönnum stofnunarinnar fækkað og eiga þeir sem eftir eru í sífellt meiri erfiðleikum með að anna álaginu. Á vef Persónuverndar segir:

Haldi áfram sem horfir má búast við því að umtalsverðar tafir, umfram það sem nú er, verði á afgreiðslu mála hjá stofnuninni seinni part árs auk þess sem stofnunin sér ekki fram á að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum með fullnægjandi hætti.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is