Topparnir gera vel við sig í launum – Verðbólgan étur upp hækkanir
Föst laun á vinnumarkaði hækkuðu um 4,3 prósent milli áranna 2010 og 2011. Launin ná ekki að halda í við verðbólgu í landinu sem var á sama tíma 5,6 prósent. Laun stjórnenda fyrirtækja og og stofnana hækkuðu mest á tímabilinu.
Þetta kemur fram í launagreiningu endurskoðunarfyrirtækisins PricewaterhouseCoopers (PwC).
Samkvæmt greiningunni voru föst mánaðarlaun á Íslandi 463 þúsund krónur að meðaltali en heildarlaun voru að meðaltali 513 þúsund krónur á mánuði. Hækkunin er í takt við almenna kjarasamninga en heldur ekki í við verðbólgu, sem var 5,6 prósent á sama tíma.
Tekjur stjórnenda fyrirtækja og stofnana hækkuðu nokkru meira en tekjur annarra hópa milli áranna 2010 og 2011. Þannig hækkuðu laun æðstu stjórnenda (forstjóra og framkvæmdastjóra) um 9,9 prósent og laun millistjórnenda um 8,3 prósent. Aðrir hópar hækkuðu minna eða á bilinu 1-7 prósent.
Niðurstöður Launagreiningar PwC sýna að tekjur hópa, sem lækkuðu tímabundið eftir efnahagshrun, eru farnar að hækka á nýjan leik. Launaþróun ólíkra hópa er æði misjöfn og sömu sögu er að segja um hlutföll fastra launa og aukagreiðslna í heildarlaunum.
Greind voru laun eftir 94 starfsheitum og kemur m.a. í ljós að fjórðungur launa fólks í ósérhæfðum störfum eru í formi aukagreiðslna ofan á föst laun. Iðnaðarmenn eru einnig með hátt hlutfall aukagreiðslna ofan á föst laun eða um fimmtung. Flestir hópar byggja laun sín að mestu á föstum launum og eru aðeins með um 3-6 prósent af aukagreiðslum í heildarlaunum sínum.
Launagreining PwC er unnin árlega og miðast við laun í septembermánuði hvers árs. Gögnin sem liggja að baki greiningunni eru fengin milliliðalaust úr launakerfum fyrirtækja og stofnana. Greiningin byggir á raungögnum en ekki á könnunum eða svörum vinnuveitenda eða launþega. Launagreining PwC 2011 byggir á upplýsingum um laun 15.000 einstaklinga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is