Föstudagur 04.05.2012 - 16:01 - Ummæli ()

Grunnstoðir safnaða þjóðkirkunnar „að hruni komnar“ – Engin blóm eða jólatré

Söfnuðir hafa gripið til þess ráðs að hætta að kaupa blóm á altari til að skera niður kostnað. Mynd/kirkjan.is

Grunnstoðir í starfsemi safnaða þjóðkirkjunnar eru að hruni komnar vegna fjárhagsvanda. Þetta er niðurstaða nefndar sem skipuð var til að meta áhrif niðurskurðar fjárveitinga á starfsemi þjóðkirkjunnar.

Innanríkisráðherra skipaði nefndina í fyrrasumar og hefur hún skilað ráðherra skýrslu sinni.

Fram kemur í skýrslunni að eftir athuganir á ársreikningum sókna og af lýsingum fulltrúum sóknarnefnda sé óhætt að draga þá ályktun að grunnstoðir í starfsemi safnaða þjóðkirkjunnar séu að hruni komnar vegna fjárhagsvanda.

Nefndinni var samkvæmt erindisbréfi ekki falið að leggja fram beinar tillögur til úrbóta en í lokaorðum skýrslunnar segir að rétt sé að fram komi að með því að stíga nú það skref að hækka sóknargjöldin á næsta ári upp í 852 krónur á sóknarbarn á mánuði úr 701 krónu.

Þar með væri náð þeim árangri að bæta sóknunum liðlega tvo þriðju hluta þeirrar skerðingar sem þær sættu umfram aðra og unnt ætti að vera að bæta þeim það sem þá vantaði á árinu 2014.

Nefndin telur eðlilegt að Þjóðkirkjan taki á sig skerðingu til jafns við aðrar stofnanir þjóðfélagsins en telur réttlætismál að bæta kirkjunni þá umframskerðingu sem hún hefur orðið fyrir því það hljóti að hafa verið mistök að hún var skert meira en aðrar stofnanir.

Nefndin óskaði eftir umsögnum frá nokkrum sóknum í öllum landsfjórðungum um rekstur þeirra á síðasta árið og viðbrögð þeirra við skertum tekjum. Umsagnirnar gefa til kynna að staðan er víða orðin mjög alvaleg og benti til þess að samanlagt tap þeirra níu sókna sem skiluðu inn umsögnum yrði vel á annað hundrað milljón króna. Samanlagðar skuldir þessara sókna stefnir í sjö hundruð milljónir.

Hér að neðan má sjá brot úr þeim umsögnum sem bárust nefndinni.

Við höfum dregið úr starfinu hjá okkur, sagt upp ……… skrúfað fyrir snjóbræðslukerfið og mokum ekki snjó nema athafnir séu í kirkjunni.

Samið upp á nýtt við kirkjuverði um aukið vinnuframlag fyrir sömu laun ….. meira verður ekki gert á rekstrarsviði kirkjunnar nema þá að fara að loka henni einhverja daga í hverri viku sem er vandséð þar sem einhver starfsemi er þar alla daga.

Laun hafa verið lækkuð og vinnuframlag í framhaldi af því. Enginn hefur verið undanskilinn nema ræstingin, sem hefur reyndar verið í algjöru lágmarki undanfarin ár.

Skorið hefur verið niður í helgihaldi og kærleiksþjónustu, í helgihaldi fyrst og fremst í aðkeyptum flutningi, þ.m.t. kórsöng við guðsþjónustur og messur, blóm eru ekki lengur keypt til að hafa á altari og í kærleiksþjónustunni er niðurskurður í heimsóknarþjónustu til þurfandi sóknarbarna.

Mikil lekavandamál þannig að t.d. þarf að breiða plast yfir altari í rigningum.

Engin blóm eða jólatré.

Söfnuðurinn greiddi upp allar langtíma byggingarskuldir fyrir 7 árum og stóð ágætlega, en nú er varasjóður að tæmast og þá mun halla hratt undan fæti.

Orgel kirkjunnar er nánast ónýtt.

Nefndina skipa þau Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi ráðherra, formaður, án tilnefningar, Oddur Einarsson, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu, án tilnefningar, séra Gísli Jónasson, prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra, tilnefndur af kirkjuráði og séra Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur Suðurprófastsdæmis, tilnefnd af kirkjuráði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is