Jónína biður Guð að blessa nýja Ísland – Ég hef sýnt veikleika og vil bæta úr því
„Guð blessi nýja Ísland og Íslendinga,“ segir Jónína Benediktsdóttir athafnakona og nýjasti meðlimur Framsóknarflokksins. Hún segist hafa sýnt veikleika og viðurkennir að viðmót hennar hafi ekki verið kristilegt, en vill nú bæta úr því.
Tónninn í grein hennar í dag, sem birtist í Morgunblaðinu, er töluvert frábrugðinn því sem var í opnu bréfi hennar til Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, fyrir um tveimur vikum. Er grein hennar í dag öllu lágstemmdari og viðurkennir hún að hafa á tíðum gengið of langt.
Ég viðurkenni fúslega að á stundum hef ég málað í of sterkum litum, ekki sýnt umburðarlyndi og alls ekki sýnt kristilegt viðmót þeim sem ég horfði á fremja glæpi gegn íslenskum almenningi. Ég hef sýnt veikleika og vil bæta úr því,
segir Jónína og bætir við:
Við sem kristin þjóð ættum að tileinka okkur þær kenningar að viðhorf okkar skiptir mestu máli. Með neikvæðu viðhorfi virkjum við neikvæð öfl. Sú barátta sem við stöndum í er ekki við menn af holdi og blóði heldur öfl sundrungarinnar sem hlæja í hásæti heimskunnar. Heimskan er grunnur allrar syndar.
Jónína segir að Ísendingar búi nú í samfélagi þar sem stjórnvöld „ráðast gegn þorra manna“. Þótt meirihlutinn hafni þessari stefnu þeirra halda þau „lymskufullum“ verkum sínum áfram.
Á Íslandi er ekki verið að sameina þjóðina með skýrum og raunsæjum markmiðum heldur er verið að blekkja mann og annan til fylgis við það sem samviskan segir þeim að sé rangt. Þetta kallar á skálmöld og hjaðningavíg. Samviska stjórnmálamanna gengur kaupum og sölum. Þú styður þetta mál og færð þetta ráðuneyti í staðinn. Fólk selur samvisku sína í skiptidílum. Viljum við slíkt?
Jónína segir að vegna andrúmslofts sundrungar og vantrausts sé Alþingi óstarfhæft. Kominn sé tími til að snúa við blaðinu. Ekki megi missa sjónar á kristilegum gildum og virða ber krossinn í þjóðfána okkar.
Vinstri sundrungin er sem krabbamein í þjóðarlíkamanum og kímómeðferðir stjórnvalda lama ónæmiskerfi almennings. Við erum að veikjast, börnin okkar að flýja land og eftir situr kerfi sem drepur ekki bara sendiboðana heldur líka að endingu alla aðra,
segir Jónína sem lýkur greininni á orðunum:
Kjósendur. Látum ekki gulu pressuna villa um fyrir ykkur einu sinni enn.
Guð blessi nýja Ísland og Íslendinga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
