Laugardagur 05.05.2012 - 09:45 - Ummæli ()

Ögmundur svarar Nubo fullum hálsi: Kannski laus við mig en ekki íslenska þjóð

„Ég held að erlendir auðkýfingar eigi að fara varlega í að hreykja sér á kostnað íslenskra stjórnmálamanna sem vilja sporna gegn því að vaðið sé á skítugum skónum inn á Ísland,“ segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.

Þarna vísar Ögmundur í orð kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubo sem sagðist í gær bjartsýnn á að samningur um Grímsstaði á Fjöllum gangi í gegn, nú þegar Ögmundur er ekki viðriðinn ferlið. Vonast Nubo til að skrifað verði undir samninga í næsta mánuði.

Ögmundur segir á heimasíðu sinni að erlend ríki fylgist með tilraunum Kínverja að fá fótfestu á Íslandi.

Þau líta flugvallardraumana öðrum augum en íslenskir sveitarstjórnarmenn við samningaborð Núbós. Þar hafa menn stórveldahagsmuni í huga, líka þegar menn segjast vilja kíkja upp í hinintunglin, eða voru það Norðurljósin?

Og hvað með ábendingar Ragnars Ólafssonar hér á síðunni um hvort menn vilji koma á fót túrista-stóriðju. Hvort hætta kunni að vera á „ofbeit“. Ábendingar Ragnars þarf að ræða. Fyrst forsvarsmenn Norðanmanna vilja ekki taka umræðuna þá þurfa aðrir landsmenn að gera það,

segir Ögmundur og bætir við að það sé mál þjóðarinnar allrar hvort eignarhaldi eða afnotarétti sé ráðstafað út fyrir landsteinana.

Kínverski auðmaðurinn hrósar happi yfir að vera laus við innarríkisráðherrann. En skyldi hann vera laus við íslenska þjóð? Ég held ekki. Almennt vilja Íslendingar ekki verða hráefnanýlenda fyrir erlenda auðmenn, jafnvel þótt stöku sveitarstjórnarmanni glepjist sýn. Þannig varð það líka í Mið- Ameríku þegar bananaekrurnar voru seldar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is