Laugardagur 05.05.2012 - 11:35 - Ummæli ()

Líkir þingmönnum við Láka jarðálf – Vaknar á hverjum morgni og finnur nýjar leiðir til að vera vont

Margrét segir hátterni þingmanna svipa til Láka jarðálfs.

„Ég bauð mig EKKI fram til að sitja í þingsal með fólki sem vaknar á hverjum morgni eins og Láki jarðálfur og reynir að finna nýjar leiðir til að vera vont, til þess að skemma og eyðileggja.“

Svona lýsir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, ástandinu á Alþingi eins og það er í dag. Eins og fram hefur komið á Eyjunni í vikunni stendur yfir mikið málþóf þar sem löngum tíma er eytt í umræður um smávægileg mál, á meðan önnur og brýnni málefni bíða úrlausnar.

Í grein sem Margrét skrifar á Eyjuna segir hún að á Alþingi sé í gangi leikþáttur sem hún kallar „Hver ræður á þinginu“. Fundað sé fram á nótt um „nánast ekki neitt“, til að mynda hvort ráðuneyti skuli vera fleiri eða færri og hvaða ráðherra gerir hvað.

Öllum ber þó saman um að við ætlum að hafa ráðuneyti.

Margrét lýsir því hvar hún kveikti á Alþingisrásinni í fyrrakvöld til að fylgjast með umræðum. Þær hafi verið „í það heila yfirmáta heimskulegar“. Þannig hafi því verið haldið fram að það liggi svo á að stofna umhverfis- og auðlindaráðuneyti því að ESB ætlaði sér að verða olíuríki og þyrfti þess vegna að komast yfir auðlindir Íslands.

Margrét bendir á þær einföldu staðreyndir að ekki er búið að finna olíu á Íslandsmiðum og að kveðið var á um stofnun ráðuneytisins í stjórnarsáttmálanum, löngu áður en  sótt var um aðild að ESB.

Það sem mér fannst sorglegast var að sjá var hvernig þingmenn, sem ég VEIT að eru alls ekki svo vitlausir að þeir trúi þessu bulli fóru í andsvör, ekki til þess að mótmæla ruglinu heldur viðhalda klikkaðri umræðu og halda þinginu í gíslingu. Þannig taka þeir í raun undir vitleysuna af því að þeir eru „í liði“ með samsæriskenningasmiðnum, þótt það sé ekki ætlun þeirra,

segir Margrét og bætir við:

Þá voru nokkrir þingmenn áberandi þvoglumæltir einhverra hluta vegna. Ég hlustaði til að ganga eitt í nótt, en gafst alveg upp á þessu þegar menn í fullri alvöru eyddu tíma þingsins í að skilgreina hvenær væri mið nótt, hvort það væri miðnætti eða einhver annar tími.

Margrét segir að þegar hún vaknaði í gærmorgun hafi hún fundið að hún gæti bara ekki farið í vinnuna. Hún gat einfaldlega ekki sest inn í þingsal og hlustað á fólk að rífast bara til þess að rífast.

Ég bauð mig EKKI fram til að sitja í þingsal með fólki sem vaknar á hverjum morgni eins og Láki jarðálfur og reynir að finna nýjar leiðir til að vera vont, til þess að skemma og eyðileggja.

Margrét tekur reyndar fram að í öllum þingflokkum sé frábært fólk sem vill vel, vandar sig og kýs samvinnu fram yfir sundurlyndi.

Og það heldur sig til hlés. Sumir sýna jafnvel hugrekki og leggja til lausnir á deilumálum þrátt fyrir bann foringjanna og er refsað í kjölfarið. Þeir sem standa fyrir vitleysunni eru mun færri en hinir en það undarlega er að þeir ráða.

Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, skrifar pistil á Smuguna þar sem hann tekur undir orð Margrétar þess efnis að ekki hafi verið mikill sómi af störfum þingsins undanfarna daga. Yfirbragð þingsins hafi verið þannig að það sé engum til gagns, hvorki þingmönnum né þjóðinni.

Reyndar á íslenska þjóðin kröfu á afsökunarbeiðni frá þinginu og þeim sem hafa smánað það með framgöngu sinni að undanförnu.

Hann tekur hins vegar ekki undir þau orð Margrétar að þinghúsið sé „fullt af bavíönum“ og vísar þar í yfirskrift greinar hennar. Telur hún að skrif hennar séu bæði „ósanngjörn og ómakleg“ gagnvart samstarfsfólki hennar og þinginu. Segist hann trúa því að hver einasti þingmaður vilji láta gott af sér leiða.

Kannski á Margrét Tryggvadóttir ekki eftir að koma til þings aftur vegna þess að hún vill ekki vera undir sama þaki og ég eða Oddný Harðardóttir eða Guðlaugur Þór Þórðarson eða Eygló Harðardóttir og allir hinir bavíanarnir. Ég myndi samt veðja á að hún mæti til vinnu sinnar á endanum eins og aðrir þingmenn. Það mun hún þá væntanlega gera á jafningjagrundvelli við okkur hin, annaðhvort sem hluti af þeim meirihluta þingsins sem er að reyna að gera vel – eða sem einn af bavíönunum.

Grein Margrétar í heild sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is