Viðskipti Sunnudagur 06.05.2012 - 14:11 - Ummæli ()

Á Huang Nubo valdamikla vini innan Samfylkingarinnar? Segir Kínverjann vega að stjórnvöldum

Framkoma kínverska auðmannsins Huangs Nubos vegna ásælni hans í Grímsstaði á Fjöllum er á þann veg að hún ein ætti að vekja grunsemdir um heilindi hans og raunverulegan áhuga á að eiga gott samstarf við Íslendinga. Þetta segir Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Björn segir í nýjum pistli á heimasíðu sinni að svo virðist sem Kínverjinn eigi áhrifamikla bandamenn:

Huang Nubo á valdamikla vini innan Samfylkingarinnar sem hafa beitt sér mjög í hans þágu hvort sem þeir eru utan eða innan stjórnarráðsins. Þeir hafa farið með hann um landið, veitt honum lögfræðilega ráðgjöf, skipað sendiherra Íslands í Peking að taka þátt í áróðursfundum með Huang í Kína og síðan hannað nýja leikfléttu með honum eftir að íslensk lög stóðu í vegi fyrir kaupum hans á Grímsstöðum.

Björn segir nýjustu tíðindin benda til þess að kínverski fjárfestirinn telji sig hafa íslensk stjórnvöld í vasanum og stefni nú á að leigja land til 99 ára:

Síðast þegar um það var rætt að útlendingar vildu fá hér aðstöðu til 99 ára fór allt á annan endann meðal stjórnmálamanna og þjóðarinnar. Þetta var árið 1945. Bandaríkjamenn komu hingað með herlið árið 1941 og sömdu við Íslendinga um brottför þess í lok heimsstyrjaldarinnar síðari. Þegar henni lauk fóru þeir þess á leit að fá hér aðstöðu fyrir herstöðvar til 99 ára. Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, var forsætisráðherra í nýsköpunarstjórninni með sósíalistum. Hann og ríkisstjórnin öll snerist gegn herstöðvabeiðninni. Fór svo að árið 1946 var Keflavíkursamningurinn svonefndi gerður um afnot Bandaríkjamanna af Keflavíkurflugvelli. Gerð samningsins varð til þess að sósíalistar/kommúnistar slitu ríkisstjórnarsamstarfinu.

Nú segir kínverskur fjárfestir, sem ekki getur látið að sér kveða í útlöndum nema með samþykki kommúnistastjórnarinnar í Kína, að hann hafi samið við Íslendinga um 99 ára leigu á Grímsstöðum á Fjöllum. Sér hafi tekist að leika á innanríkisráðherrann.

Og Björn segir að staðan sé skýr og forvitnilegt verði að fylgjast með framhaldinu:

Nú mun enn reyna á hvor hefur betur innan ríkisstjórnarinnar og stjórnarsamstarfsins Ögmundur Jónasson eða Huang Nubo.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is