Sunnudagur 06.05.2012 - 19:05 - Ummæli ()

Au Revoir Sarkozy – Francois Hollande verður næsti forseti Frakklands

Nicolas Sarkozy er enn einn þjóðarleiðtoginn sem fellur af stalli eftir að fjármálakrísan hófst.

Sósíalistinn Francois Hollande er sigurvegari forsetakosninganna í Frakklandi. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 1995 sem vinstri maður gegnir embættinu. Nikolas Sarkozy hefur þegar játað ósigur.

Fyrstu útgönguspár gáfu til kynna að Hollandes hefði borið sigur úr býtum. Það var svo fljótlega eftir lokun kjörstaða sem Sarkozy kastaði hvíta handklæðinu. Óskaði hann Hollandes góðs gengis um leið og hann þakkaði fylgjendum sínum fyrir stuðninginn.

Vinstri maður hefur ekki verið við völd í Frakklandi síðan Francois Mitterand lét af embætti forseta árið 1995.  Í kosningabaráttunni gagnrýndi Hollande nálgun ESB á skuldavandann í Evrópu. Vill hann leggja meiri áherslu á að örva hagkerfi evruríkjanna í stað harðra niðurskurðaraðgerða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is