Embætti forseta hvorki úrelt né óþarft. Má hvorki tengjast flokkakerfi né hagsmunaöflum
Á meðan við búum við óbreytta stjórnskipun og Alþingi Íslendinga nýtur ekki trausts nema hjá broti af þjóðinni er embætti forseta Íslands hvorki úrelt né óþarft, segir Herdís Þorgeirsdóttir prófessor og forsetaframbjóðandi.
Herdís hefur sent Eyjunni orðsendingu í tilefni af skrifum Páls Skúlasonar fyrrverandi háskólarektors og prófessors í heimspeki á vefsíðu Egils Helgasonar hér á Eyjunni í dag, þar sem hann hvatti til umræðu um forsetaembættið.
Meðal þess sem Páll Skúlason sagði um forsetann er:
Ef forsetinn nýtur ekki trausts alls þorra þjóðarinnar getur hann ekki gegnt hlutverki sínu með þeim hætti sem hlutverkið krefst. Þá sameinar hann okkur hvorki inn á við né út á við.
Af þessu tilefni vill Herdís koma eftirfarandi orðsendingu á framfæri:
Á meðan við búum við óbreytta stjórnskipun og Alþingi Íslendinga nýtur ekki trausts nema hjá broti af þjóðinni (þingmaður lýsir ástandinu þar sem „helsjúku“) þá er embætti forseta Íslands hvorki úrelt né óþarft.
Það er nauðsynlegt að það embætti skipi manneskja, sem er hvorki hluti af flokkakerfinu né tengd hagsmunaöflum í samfélaginu. Eingöngu slíkur einstaklingur getur notið trausts meðal þjóðarinnar. Eingöngu slíkur einstaklingur getur notið trúnaðar alls Alþingis en ekki aðeins hluta þess. Gagnvart stríðandi öflum í samfélaginu gildir hið sama.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
