Reynir Traustason með persónulegt met í göngu upp að Hnjúknum. Fúlt en samt sáttur
Reynir Traustason ritstjóri DV setti persónulegt met í fjallgöngu í gær er hann gekk á Hvannadalshnjúk ásamt um hundrað öðrum göngugörpum. Þótt hópnum hafi verið snúið frá hátindinum vegna slæms veðurs kveðst ritstjórinn sáttur, enda hafi þetta verið fyrir sína parta erfiðasta ganga allra tíma.
Breyttur lífsstíll Reynis Traustasonar hefur vakið mikla athygli að undanförnu, en ritstjórinn hefur gengið á fjöll nánast dag hvern undanfarna mánuði og náð af sér tugum kílóa, eins og hann hefur greint frá í bloggfærslum á vef DV.
Þar segir m.a.:
Reynir Traustason var 135 kíló í ársbyrjun 2011. Þá hófst baráttan við holdið sem leiddi til þess að fjörutíu kíló hurfu á einu ári. Lykillinn í baráttunni eru yfir 300 fjallgöngur og gjörbreytt mataræði. En slagurinn heldur áfram. Hér verður greint frá sigrum og ósigrum á þessari vegferð, sem aldrei lýkur, en stefnan er sett á sjálft Mont Blanc, 4808 metra.
Í gær var komið að Hvannadalshnjúk eftir marga vikna undirbúning og Reynir segir ferðasöguna á fésbókarsíðu sinni:
Náðum langleiðina á toppinn í erfiðustu göngu allra tíma. Hópnum snúið frá áður an hátindinum var náð vegna fannfergis og blindu sem er afleitt þar sem um sprungsvæði er að ræða. Verð að klára þessa rúmlega 200 metra síðar. Fúlt en er samt sáttur við að hafa náð að ganga langleiðina í 2000 metra hæð. Það er persónulegt met. Á bakaleiðinni brast síðan á glaðasólskin og Hnjúkurinn skellihló að þessum 100 maurum sem snéru frá.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
