Mánudagur 07.05.2012 - 18:41 - Ummæli ()

Fyrsti valkostur út af borðinu í Grikklandi – Samaras getur ekki myndað stjórn

Antonis Samaras, til vinstri, tók við stjórnarmyndunarumboðinu úr höndum forseta landsins, Alexis Tsipras, fyrr í dag. Hann hefur nú skilað því.

Antonis Samaras, leiðtogi hægri flokksins Nýtt lýðræði, hefur skilað inn umboði flokksins til stjórnarmyndunar. Hann segist hafa gert allt sem í hans valdi stóð til að mynda ríkisstjórn, en það hafi reynst útilokað.

Flokkur Samaras var eini flokkurinn ásamt sósíalistunum í PASOK sem studdi björgunarpakka ESB og AGS í aðdraganda kosninganna. Samaras skilaði umboði sínu til að mynda ríkisstjórn einungis nokkrum klukkustundum eftir að hann fékk það í hendur.

Á fréttavef BBC segir að forseti Grikklands, Alexis Tsipras, muni á morgun veita formanni vinstri flokksins Syriza umboð til stjórnarmyndunar. Takist flokknum ekki að mynda ríkisstjórn, sem stjórnmálaskýrendur telja líklegt að verði niðurstaðan, aukast líkurnar á nýjum kosningum all verulega.

Niðurstaða kosninganna þýðir að samskipti Grikklands við Evrópusambandið eru komin í uppnám. enda einu flokkarnir sem styðja björgunarpakkann langt frá því að geta myndað ríkisstjórn.

Angela Merkel, Þýskalandskeisari, lét hafa eftir sér í dag að ekki verði horfið frá niðurskurðaraðgerðum í Grikklandi. Það kann að auka enn frekar á óvissuna að Francois Hollande, nýkjörinn Frakklandsforseti, hefur töluvert ólíkar skoðanir en Merkel um hvernig draga á úr skuldakreppunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is