Krugman: Kjósendur í Evrópu reyndust klárari en leiðtogarnir – Evran á nú meiri möguleika
„Frakkar eru í uppreisn. Sömuleiðis Grikkir. Og það var kominn tími til,“ segir nóbelshagfræðingurinn Paul Krugman um niðurstöður kosninganna í Frakklandi og Grikklandi. Hann segir að evran og Evrópusamstarfið eigi meiri möguleika á að lifa af skuldakreppuna í dag en í síðustu viku.
Bæði í Frakklandi og Grikklandi var ráðandi öflum velt úr sessi. Nicolas Sarkozy beið lægri hlut fyrir Francois Hollande á meðan stjórnarflokkarnir í Grikklandi biðu afhroð.
Í grein sem Krugman ritar í New York Times segir hann að enn sé óljóst hvort og hvernig þessar breytingar munu skila sér í raunverulegri strefnubreytingu, en engu að síður sé niðurstaðan góðs viti.
Það sem er satt að sigur Herra Hollande táknar endalok „Merkozy“, hornsteininn í niðurskurðarstefnu Frakka og Þjóðverja sem framfylgt hefur verið [á evrusvæðinu] undanfarin tvö ár. Þetta væri hættuleg þróun ef þessi stefna væri að virka, eða hefði minnstu möguleika á að virka. En hún er það ekki og mun ekki gera það; það er tími til kominn að halda áfram. Það kom í ljós að kjósendur í Evrópu eru klárari en þeir bestu og gáfuðustu í álfunni.
Krugman hefur ítrekað bent á að það gangi einfaldlega ekki upp að koma ríkjum út úr kreppu með harkalegum niðurskurði. Ef enginn er ávinningurinn, þá er heldur enginn tilgangur í að taka á sig sársaukann. Bendir Krugman á Írland máli sínu til stuðnings sem hafi verið „góður hermaður“ í krísunni. Segir hann að Írar séu enn ekki búnir að ná sér á strik eftir kreppuna, þrátt fyrir yfirlýsingar írskra og evrópskra ráðamanna þess efnis.
Ein lausn – sem er mun augljósari en nokkur í Evrópu er tilbúinn til að viðurkenna – er að leysa upp evruna, sameiginlega mynt Evrópu. Evrópa væri ekki í þessum vandræðum ef Grikkland hefði enn drökmuna, Spánn pesetann, Írland pundið og svo framvegis, vegna þess að þá myndu Spánn og Grikkland þegar hafa það sem þau skorta: skjótvirka lausn til að endurheimta samkeppnishæfni og auka útflutning, nefnilega gengisfellingu,
segir Krugman og bendir á reynslu Íslands.
Andstaðan við sorgarsögu Írlands er Ísland sem var núllpunktur (e. ground zero) fjármálakrísunnar en gat brugðist við með að fella gengi krónunnar (og hafði hugrekki til að láta bankana falla og greiða ekki skuldir þeirra). Ísland er að upplifa þá endurreisn sem Írland átti að upplifa, en hefur ekki gert.
Krugman bendir á að endalok evrunnar hefðu í för með sér alvarlegar og neikvæðar afleiðingar og verða mikið áfall fyrir upphaflegt markmið Evrópusamstarfsins, sem var að breiða út frið og lýðræði í álfunni. Hann bendir á að Þjóðverjar hafi þegar sýnt fram á að það er til lausn á vandanum, en þeir átti sig hins vegar ekki á lærdómnum af þeirra eigin reynslu.
Þeir halda fast í þá ímyndun sína að hagsæld verði kölluð fram með sársauka, og þrýsta á að þeirra eigin mislukkaða stefna sé sú eina skynsamlega í stöðunni. En það lítur út fyrir að þeir njóti ekki lengur skilyrðislauss stuðnings Frakka. Og það, hvort sem þið trúið því eða ekki, þýðir að bæði evran og Evrópusamstarfið á nú meiri möguleika á að lifa af en það átti fyrir nokkrum dögum síðan.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
