Markaðir titra vegna kosningaúrslita – Óttast upplausn í Grikklandi
Hlutabréf um allan heim lækkuðu í verði sem og evran þegar markaðir opnuðu í morgun. Ástæðuna má rekja til kosningaúrslita í Frakklandi og Grikklandi. Í síðarnefnda landinu er búist við pólitískri upplausn eftir að ríkjandi valdaflokkar voru hraktir frá löndum.
Mikil lækkun varð á mörkuðum í Asíu, Ástralíu og Evrópu við opnun. Mest varð lækkunin í Grikklandi þar sem ASE hlutabréfavísitalan lækkaði um 7,7 prósent. Hlutabréf í bönkum lækkuðu hlutfallslega mest. Þá lækkaði verð á olíu og gulli.
Fyrirfram var búist við að sigur Hollande hefði neikvæð áhrif á markaði, enda efnahagsstefna Sarkozys markaðsvænni um leið og gefið var að hann vildi framfylgja óbreyttri efnahagsstefnu innan ESB.
En það eru fyrst úrslitin í Grikklandi sem valda óróa á mörkuðum. Úrslitin sýna svo ekki verði um villst að grískur almenningur er mjög afhuga björgunaraðgerðum ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Uppgangur öfgaflokka veldur sömuleiðis áhyggjum. Fengu nýnasistar til að mynda 7 prósent atkvæða og 19 menn á þing. Afar erfitt gæti orðið að mynda starfhæfa ríkisstjórn og því gæti þurft að kjósa upp á nýtt.
Takist að mynda meirihluta þykir næsta víst að sú ríkisstjórn mun snúa baki við björgunarpakkanum. Það þýðir um leið að það er aðeins ein leið fyrir Grikki út úr kreppunni, á eigin og vegum og án evrunnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is