Niðurlægjum við þolendur? Einelti er ekki samskiptavandi, heldur ofbeldi
Einelti er ekki samskiptavandi. Það er ofbeldi, segir Hugó Þórisson sálfræðingur, en mikil umræða hefur verið um einelti í fjölmiðlum undanfarna daga og vikur.
Margir hafa lagt orð í belg í þá umræðu, en Hugó segir á fésbókarsíðu sinni sem stofnuð var í tengslum við útkomu bókar hans Hollráð Hugós, að mikilvægt sé að skólafólk og foreldrar standi rétt að uppgjöri og úrvinnslu slíkra mála.
Hugó nefnir sem dæmi að algengt sé að leiða saman fórnarlamb eineltis og gerandann og þeim sé skipað að sættast og ljúka málinu þannig. Hann segir að slíkt eigi alls ekki að gera:
Það má aldrei verða svo að gerandi og þolandi séu leiddir saman til að sættast sem jafnábyrgir í atburðarrásinni. Það er viðbótarniðurlæging fyrir þolandann.
Við sjáum hversu fáránlegt það væri ef þolandi i heimilisofbeldi ætti að taka í höndina á gerandanum og sættast eins og báðir hafi borið ábyrgð á verknaðinu. Eða hvaða öðru ofbeldisverki sem er. Hugsaðu þér að verða fyrir andlegu/líkamlegu ofbeldi og þegar þú reynir af máttleysi að verja þig ert þú gerð(ur) jafnábyrg(ur) fyrir því sem gerðist milli þín og þess sem réðst á þig/að þér.
Skólafólk, foreldrar og aðrir verða því að vera 110% vissir um að það sé EKKI einelti í gangi þegar börn eru leidd saman sem jafningjar til að sættast.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
