Mánudagur 07.05.2012 - 10:33 - Ummæli ()

Ritstjóri Fréttablaðsins ósáttur við frumvarp Katrínar: „Dæmigerð delluhugmynd“

Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins.

„Tillaga menntamálaráðherra er svona dæmigerð delluhugmynd, sem er til þess hugsuð að hafa vit fyrir fólki en byggir ekki á neinum vísindalegum grunni,“ segir Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins. Hann vísar þarna í tillögu menntamálaráðherra sem bannar birtingu skoðanakannana daginn fyrir kosningar og á kjördag.

Eins og Eyjan greindi frá á dögunum hefur menntamálaráðherra lagt fram frumvarp til breytinga á fjölmiðlalögum. Þær fela meðal annars í sér að birting skoðanakannana verði bönnuð á kjördag og daginn fyrir kosningar.

Í frumvarpinu segir að þetta sé gert til að veita kjósendum frekara svigrúm til að mynda sér skoðun á kjördag og daginn fyrir kosningar, en á það hefur verið bent að slíkar kannanir geta verið skoðanamyndandi. Líklegt sé að birting skoðanakannnana hamli litlum eða nýjum framboðum.

Ólafur tætir þessar tillögur ráðherrans í sig í leiðara Fréttablaðsins í dag. Bendir hann á að hvergi í greinargerð frumvarpsins sé vísað í rannsóknir sem sýni fram á tengsl skoðanakannana og kosningahegðunar.

Það er ekki skrýtið, vegna þess að þær eru ekki til.

Þvert á móti, segir Ólafur, er sú tilgáta vinsæla að framboð sem mælast með lítinn stuðning í könnunum rétt fyrir kosningar fái samúðarfylgi.

Ólafur bendir á að hugmyndin um bann við birtingu skoðanakannana sé ekki ný af nálinni. Þannig skilaði sérfræðinganefnd menntamálaráðherra skýrslu árið 1991 þar sem þetta var kannað. Niðurstaðan var sú að beinlínis var varað við  því að „banna fólki aðgang að upplýsingum sem það kann að vilja nýta sér til ákvarðanatöku, enda sé ekki um að ræða rangar upplýsingar sem ógni almannaheill“.

Í frumvarpinu eru engin rök færð fyrir því af hverju eigi að banna fjölmiðlum að birta niðurstöður kannana síðustu dagana fyrir kosningar en leyfa aðrar pólitískar fréttir, auglýsingar framboða og annað sem ætla má að veiti fólki upplýsingar um framboðin og hafi þar með áhrif á það hvernig það ráðstafar atkvæði sínu.

Tillaga menntamálaráðherra er svona dæmigerð delluhugmynd, sem er til þess hugsuð að hafa vit fyrir fólki en byggir ekki á neinum vísindalegum grunni. Hún er fyrst og fremst til þess fallin að takmarka frelsi fjölmiðla og hamla aðgangi almennings að upplýsingum. Svoleiðis delluhugmyndir á Alþingi ekki að samþykkja.

Hér má lesa leiðara Ólafs Stephensen.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is