Mánudagur 07.05.2012 - 11:58 - Ummæli ()

Þjóðin stendur með Ögmundi, segir Jón – Ég þekki hin bognu hné á stjórnarheimilinu

Jón Bjarnason stendur með Ögmundi í Nubo-málinu.

„Ég fullyrði að megin þorri íslensku þjóðarinnar standi með Ögmundi og þeim öðrum sem vilja standa vörð um íslenskar auðlindir, bújarðir og víðerni gegn ásælni erlendra stórvelda,“ segir Jón Bjarnason, þingmaður og fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.

Eftir að tilkynnt var um að samningur við Huang Nubo um leigu á Grímsstöðum á Fjöllum væri nánast frágenginn hefur Ögmundur Jónasson, sem kom á sínum tíma í veg fyrir kaup hans á jörðinni, haldið uppi háværum málflutningi gegn samningnum. Hertist Ögmundur enn frekar í andstöðu sinni eftir að Nubo sagði að málið gengi hnökralaust fyrir sig þar sem það væri ekki lengur á könnu innanríkisráðherra.

Jón Bjarnason segir hins vegar á heimasíðu sinni að hvorki íslenska né kínverska ríkisstjórnin geti hrósað happi yfir að vera laus við Ögmund, sem hafi með „vasklegri framgöngu“ stöðvað kaupin.

Ég þekki þó tóninn og hin bognu hné á ríkisstjórnarheimilinu hvað þetta og önnur viðlíka mál varðar og veit hversu mikilvægt það er að hafa strax varann á.

Jón segir að mikilvægt að standa í lappirnar nú þegar „framsal á landi“ kemur upp aftur með öðrum formerkjum.

Það ætti svo sem ekki að vera erfitt fyrir ráðherra Vinstri grænna  að standa gegn  landaframsali sem þessu  eins og það birtist með skýra stefnu flokksins í auðlinda-,  umhverfis-, náttúruverndar og sjálfsstæðismálum og  láta frá sér heyra,

segir Jón og minnir á að landakaup Kínverja á Nýja-Sjálandi hafi vakið upp harðar deilur þar í landi. Þar hafi Kínverjar haft sitt fram með hörðum lögsóknum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is