Vill losna við stjórn Dróma – Óþolandi að fólki sé haldið í gíslingu
Slitastjórn Dróma hefur enn ekki endurreiknað lán hjónanna sem unnu gengislánamálið í Hæstarétti í febrúar. Lögmaður þeirra gagnrýnir vinnubrögð Dróma harðlega og krefst þess að hún fari frá störfum.
Hjónin voru með lán hjá Frjálsa fjárfestingabankanum sem rann til Dróma eftir hrun. Þau hafa nú unnið tvö mál í Hæstarétti gegn Dróma, nú síðast í febrúar þar sem kveðið var á um að óheimilt var að reikna Seðlabankavexti aftur í tímann.
Þrátt fyrir dóminn hefur slitastjórnin enn ekki fengist til að endurreikna lán hjónanna, þótt lögmaður þeirra hafi ítrekað farið fram á það.
Ég hef sent mína útreikninga á stöðunni til bankans fyrir löngu síðan, ég hef óskað eftir fundum og reyndar fengið fundi með slitastjórninni þar sem þetta hefur verið rætt, en hún er aldrei tilbúin með nein svör um það hvernig slitastjórninn telur að kröfurnar standi,
segir Ragnar H. Hall, lögmaður hjónanna, við fréttastofu RÚV sem greindi frá málinu í kvöldfréttum sjónvarps. Hann fer fram á að slitastjórnin víki.
Ragnar segir umbjóðendur sína og eignir þeirra í gíslingu vegna tregðu slitastjórnarinnar, þar sem þau viti ekki enn hver skuldastaða þeirra sé, en hann telur bankann skulda þeim milljónir króna. Hann segir fjölda fólks í svipaðri stöðu og óvissuástandið sem slitastjórnin bjóði upp á sé óþolandi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is