Alþingi stöðvi innheimtu ólögmætra lána í stað þess að þrasa um nöfn á ráðuneytum
„Þarf ekki að tryggja að bankarnir hætti að innheimta gengistryggðu lánin þar til niðurstöður liggja fyrir? Hætti bara að rukka,“ segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, um innheimtu lána sem þegar hafa verið dæmd ólögmæt.
Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður hefur krafist þess að stjórn Dróma víki frá vegna þess að lán hjónanna sem unnu gengislánamálið í Hæstrétti í febrúar hefur ekki enn verið endurútreiknað.
Eygló gerir málið að umfjöllunarefni í grein á Eyjunni, þar sem hún segir að niðurstaða í málið verði varla komin fyrr en í haust, jafnvel um áramót. Svo virðist sem enginn þrýtingur sé á fjármálafyrirtæki að drífa þessi mál af.
Sagði ekki einhver að „money talks“? Kannski gerist ekkert fyrr en þetta fer að koma verulega við buddu bankanna, greiðsluflæðið hjá þeim?
Þarf ekki að tryggja að bankarnir hætti að innheimta gengistryggðu lánin þar til niðurstöður liggja fyrir?
Hætti bara að rukka,
segir Eygló og bætir við:
Er ekki mikilvægara að Alþingi einhendi sér í að stöðva innheimtu ólögmætra lána, í stað þess að þrasa út í eitt um nöfn á ráðuneytum?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is