Evrópuráðsþingið vinnur að skýrslu um Landsdóm – Evrópskir þingmenn óttast fordæmið
Evrópuráðsþingið vinnur nú að samanburðarskýrslu þar sem réttarhöldin yfir Geir H. Haarde annars vegar og Júlíu Tímósjenkó hins vegar eru til umfjöllunar. Hollenskur þingmaður sem aflar gagna réttarhöldin yfir Geir segir mögulegt að fordæmi Íslendinga verði fylgt í Suður-Evrópu.
Ég tel að það gæti gerst. Það er hugsanlegt að kjósendur í ríkjum Suður-Evrópu, eftir því sem það heldur áfram að harðna á dalnum í efnahagslífi þeirra, muni vilja sjá hvort ákvarðanir stjórnmálamanna, í nútíð og fortíð, hafa verið réttar,
segir Pieter Omtzigt, þingmaður Kristilegra Demókrata í Hollandi. Hann situr á þingi Evrópuráðsins í Strassborg og er hér á landi til að afla gagna um Landsdóm. Morgunblaðið ræðir við Omtzigt þar sem hann segir að í skýrslunni verði meðal annars leitað svara við því hvers vegna einn ráðherra var dreginn fyrir dóm en ekki allir fjórir.
Omtzigt segir þingmenn á Evrópuráðsþinginu ekki hafa sýnt mikinn áhuga á Landsdómsmálinu í fyrstu, en það hafi breyst.
Fyrir um hálfu ári setti ég þessa rannsókn í gang. Hafði ég þá þurft að telja öðrum þingmönnum trú um að það sem væri að gerast á Íslandi væri áhugavert og hefði skírskotun til margra annarra ríkja. Nú er áhuginn á málinu að aukast vegna þess að stjórnmálamenn eru orðnir uggandi um vaxandi og langvarandi óstöðugleika í stjórnmálum aðildarríkja evrusvæðisins. Það sem er einkar áhugavert við Ísland er að saman fara djúpstæð efnahagskreppa og lög sem varða ákvarðanir stjórnmálamanna
segir Omtzigt og vísar þar í Landsdómslögin.
Við viljum komast að því hvernig þessum lögum er beitt. Það er áhugavert vegna þess að ég tel að í mörgum öðrum ríkjum verði sambærilegur þrýstingur [á réttarhöld]. Ef eitt ríki fer annaðhvort í greiðsluþrot eða yfirgefur evrusvæðið mun það leiða til gífurlegrar endurúthlutunar fjármuna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is