Herdís: Almennir borgarar geta átt þátt í að tortíma lýðræðinu
Almennir borgarar geta ekki aðeins bjargað lýðræðinu, heldur geta þeir einnig tortímt því, segir forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir. Það gera þeir með því að kjósa ákveðin öfl.
Herdís gerir lýðræðið að umfjöllunarefni á heimasíðu sinni. Segir hún að þótt óvissuástandið í efnahagsmálum sé vissulega áhyggjuefni, þá sé einnig tilefni til að hafa áhyggjur af þróun lýðræðisins.
En það er ekki síður áhyggjuefni að fólk sér ekki lýðskrumið og það hrun sem hefur orðið á þeim gildum sem við viljum byggja samfélag okkar á.
Fólk vantreystir stjórnmálamönnum. Eingöngu með því að rjúfa tengslin á milli hagsmunaðila og kjörinna stjórnvalda getum við byggt upp heilbrigt lýðræði,
segir Herdís. Hún segir lýðræðinu stafa ákveðna ógn af ákveðnum öflum í þjóðfélaginu og varar við því að kjósa fulltrúa þeirra.
Lýðræðið er í hættu. Þeir einu sem geta komið því til bjargar eru almennir borgarar. En almennir borgarar geta líka átt þátt í því að tortíma lýðræðinu með því að kjósa yfir sig öfl sem eru ekki bundin verðleikum heldur hagsmunum.
Þeir sem gleyma fortíðinni endurtaka mistökin.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
