Þriðjudagur 08.05.2012 - 13:28 - Ummæli ()

Ríkisendurskoðandi skammar stjórnmálaflokkana fyrir trassaskap – „Ámælisvert“

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi.

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, skammar stjórnmálaflokkana í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir trassaskap á ársreikningaskilum. Fjórir stjórnmálaflokkar sem eiga sæti á Alþingi skiluðu ekki ársreikningi á tilsettum tíma.

Samkvæmt lögum eiga stjórnmálaflokkar að skila fjárhagsupplýsingum til Ríkisendurskoðunar fyrir 1. október. Í fyrra bar svo við að Samfylkingin, Samtök fullveldissina, Besti flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, Íslandshreyfingin og Framsóknarflokkurinn skiluðu fjárhagsupplýsingum eftir að frestur var runninn út.

Sveinn gagnrýnir þetta vinnulag flokkanna harðlega í ávarpi skýrslunnar.

Ítrekað kemur fyrir að flokkar og frambjóðendur skila ekki upplýsingum til stofnunarinnar innan settra tímafresta. T.d. höfðu fjórir flokkar ekki skilað reikningum sínum vegna ársins 2010 fyrir 1. október 2011. Ég tel ámælisvert að flokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi skuli ekki virða þau tímamörk sem þingið hefur sjálft sett þeim með lögum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is