Rúmlega 26 þúsund manns eru í alvarlegum vanskilum – Hlutfallslega flestir á Reykjanesi
Alls eru 26.376 manns í alvarlegum vanskilum á Íslandi. Hlutfallslega flestir búa á Reykjanesi. Karlmönnum er mun hættara við að lenda í vanskilum en konum.
Þetta kemur fram í nýjum tölum Creditinfo, en þær byggja á upplýsingum um vanskil eftir að löginnheimta hefst.
Alvarlegum vanskilum hefur fjölgað hratt allt frá bankahruni, en hefur þó fækkað lítillega á allra síðustu vikum.
Karlmenn eru í miklum meirihluta. Alls eru 17.269 karlmenn í alvarlegum vanskilum, en 9.107 konur. Það eru fyrst og fremst einhleypir karlmenn sem glíma við alvarleg vanskil, eða 11.368.
Fólk á aldrinum 30 til 49 ára eru í mestri hættu á að lenda í vanskilum. Þó vekur athygli að 5.129 manns á aldrinum 18 til 29 ára eru í alvarlegum vanskilum.
Hlutfall þeirra sem eru í alvarlegum vanskilum er langhæst á Reykjanesi, eða 16,4 prósent. Því næst koma íbúar á Suðurlandi (9,7%) og höfuðborgarsvæðinu (9,5%). Fæstir eru í vanskilum á Norðurlandi vestra, eða 379 einstaklingar (6,0%).
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
