Viðskipti Þriðjudagur 08.05.2012 - 12:58 - Ummæli ()

Segir Kaupþing starfa undir rússneskum formerkjum í Þýskalandi

Netsöfnunarreikningar í anda Kaupthing Edge njóta nú sífellt vaxandi vinsælda í Þýskalandi.  Það eru fyrrum stjórnendur Kaupþings í Þýskalandi sem standa að baki reikningunum sem eiga rætur sínar að rekja til Rússlands.

Innlánsreikningarnir ganga undir nafninu VTB direkt, en þýska útgáfa Financial Times kallar bankann einfaldlega „rússneska Kaupþing“. Innistæður á reikningunum nema nú yfir einum milljarði evra, sem er þrefalt meira en var inni á reikningum Kaupthing Edge við fall bankans.

Reikningar eru starfræktir undir merkjum útibús í Austurríki sem aftur á móti er í eigu rússnesks banka.

Líkt og Kaupþing býður VTB direkt mun hærri vexti á innlán en gengur og gerist á almennum markaði í Þýskalandi.

En það er fyrst og fremst stjórnendateymi VTB direkt sem vekur áhuga Financial Times. Forstjórinn heitir Michael Kramer og stýrði áður útibúi Kaupþings. Markaðsstjórinn, Magnus Egerm og endurskoðandinn Oliver Pfluger, eru sömuleiðis á meðal æðstu stjórnenda, en báðir störfuðu þeir fyrir Kaupþing.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is