Vildu stjórnendur en sátu uppi með snapara – „Almenningur var klárari en við“
Árið 1985 ætlaði American Airlines að laða til sín ríka einstaklinga og hátt setta stjórnendur fyrirtækja með því að bjóða eilífðarpláss á fyrsta farrými gegn stórfé. Það sem þau fengu voru heimsins mestu snaparar sem flugfélagið reynir nú með öllum ráðum að losa sig við.
Forráðamönnum flugfélagsins datt það „snjallræði“ í hug að selja ótakmarkaðar flugferðir á fyrsta farrými fyrir 250 þúsund dollara og 150 þúsund fyrir ferðafélaga. Mun fleiri tóku tilboðinu en búist var við og alls ekki sá hópur sem flugfélagið vonaðist eftir.
Þeir sem keyptu tilboðið fyrir 22 árum síðan eru enn að njóta góðs af því og fljúga óspart, flugfélaginu til mikils ama. Kostnaðurinn við þessa farþega er óheyrilegur og hefur flugfélagið neyðst til að ráða einkaspæjara og höfða einkamál til að losna við suma þeirra.
Við héldum að það yrðu fyrst og fremst fyrirtæki sem myndu kaupa þetta fyrir æðstu stjórnendur. En það kom fljótlega í ljós að almenningur var klárari en við,
segir Bob Crandall, sem var stjórnarformaður American Airlines á árunum 1985 til 1998 við LA Times.
Dæmi eru um að einstaklingar hafi flogið til Japan til þess eins að fá sér hádegismat og haldið samdægurs til baka og snætt kvöldverð í New York. Einn þeirra sem nýtti sér tilboðið á sínum tíma hefur kostað flugfélagið yfir eina milljón dollara.
Jaques Vroom er í hópi þeirra sem nýtt hafa sér tilboðið til hins ítrasta. Undanfarin ár hefur hann notið alls hins besta í háloftunum – fínna máltíða, fyrsta flokks afþreyingar og framúrskarandi þjónustu. Svo ekki sé talað um alla þá framandi staði sem hann hefur heimsótt.
Flugfélagið hefur reiknað út að Vroom hefur flogið samtals 64 milljónir kílómetra í boði flugfélagsins, sem jafngildir 1.606 ferðum í kringum jörðina. Varla þarf að taka fram að hann er ekki í vinnu og á hvergi heima.
Hann þarf þó að leita sér lífsviðurværis á næstunni, því flugfélagið hefur afturkallað eilífðarpassann hans.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
