Össur segir Árna Pál vera að „máta formannsbrækur“
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir það kraftaverk nái Samfylkingin að mynda tveggja flokka ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Hann segir Árna Pál Árnason vera að „máta formannsbrækur“, en sjálfur hefur hann ekki áhuga á formennsku í Samfylkingunni.
Össur sat fyrir spurningum á Beinni línu á dv.is í dag. Össur var meðal annars spurður út í hvort Samfylkingin geti myndað ríkisstjórn með hvaða flokki sem er eftir næstu kosningar.
Ef kraftaverk eru undanskilin gæti hún tæpast myndað tveggja flokka stjórn með nema einum. Mér finnst hins vegar skemmtilegast í margflokka stjórnum, eða minnihlutastjórnum,
svaraði Össur. Han sagðist síðar á móti því að mynda kosningabandalag fyrir kosningar og hann gæti í raun hugsað sér að starfa með hvaða flokki sem er.
Ég gæti við vissar aðstæður unnið með Sjálfstæðisflokknum, en tel líklegustu niðurstöðuna félagshyggjustjórn þar sem VG sæti á fletinu líka.
Össur var einnig spurður út í mögulegar formannskosningar í Samfylkingunni. Svaraði hann því til að hann eigi enga kristalskúlu til að skyggnast inn í framtíðina, en bætti þó við:
Árni Páll er að máta formannsbrækur, Katrín og Dagur eru nefnd, fleiri langar, margir þeirra hæfir. En formaðurinn heitir Jóhanna.
Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, blandaði sér í umræðuna og spurði Össur hvort hann væri ekki tilbúinn í formannsslag í ljósi vinsælda hans innan flokksins. Össur var með svörin á hreinu.
Ég nýt fráleitt sama stuðnings innan Samfó og þú innan þíns – enda bara starfsmaður á plani. Ég er saddur formannsdaga. Það er afgreitt mál. Sorrí Stína.
Össur hyggst þó bjóða sig fram til Alþingis á næsta ári, „ef Guð lofar“.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
