Um 225 þúsund sáu Íslandsþátt Mörthu Stewart – „Frú Dorrit fór á kostum“
Ætla má að 225 þúsund manns hafi séð Íslandsþátt Mörthu Stewart, sem sýndur var á Hallmark sjónvarpsstöðinni í dag. Ísland verður eitt af hennar síðustu umfjöllunarefnum á stöðinni, enda búið að tilkynna að framleiðslu þáttarins verður hætt í sumar.
Eins og fram kom á Eyjunni í dag var Ísland þema þáttarins og átti þar að fjalla um íslenska hönnun, ferðaþjónustu og íslenska hestinn, svo fátt eitt sé nefnt. Dorrit Moussaieff var aðalgestur þáttarins, en hún og Martha Stewart þekkjast frá fornu fari.
Í tilkynningu forsetaembættisins segir að þættir Mörthu Stewart séu „afar vinsælir“ í Bandaríkjunum og þeir sýndir í yfir 50 löndum.
Engu að síður hafa vinsældir þáttanna dvínað all nokkuð og í janúar var tilkynnt um að framleiðslu þeirra yrði hætt í sumar. Ástæðan var sífellt minna áhorf og himinhár framleiðslukostnaður, að því er New York Post greindi fyrst frá.
Að meðaltali horfðu 225 þúsund manns á þáttinn, þar af 41 þúsund í helsta markhópnum sem eru konur á aldrinum 25 til 54 ára.
Martha verður þó ekki atvinnulaus, því New York Times greindi frá því í apríl að hún muni byrja með nýjan sjónvarpsþátt á PBS sjónvarpsstöðinni.
Engu að síður eru þeir Íslendingar sem komu að þættinum hæstánægðir með útkomuna. Þannig má lesa á Facebook síðu Baldvins Jónssonar, landbúnaðarfulltrúa íslenska sendiráðsins í Washington:
Frábær þáttur með Martha Stewart á Hallmark stöðinni í morgun. Forsetahjónin okkur hafa staðið sig frábærlega við að koma landinu okkar á framfæri og Frú Dorritt fór á kostum í þættinum.
Við sem stöndum að útflutningi íslenskra gæðaafurða erum afar þakklát og þetta un styrkja okkar málefni, auka fjölbreytnina með nýjum afurðum og styrkja þær sem þegar eru á markaði.
Nú þarf að fylgja þessu eftir með góðum kynningum. Góðir tímar framundan. Ekki má heldur gleyma þætti Gunnars Karls á Dill, flottur!
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
