Viðskipti Fimmtudagur 10.05.2012 - 14:23 - Ummæli ()

Hættur steðja að íslensku bönkunum – Langtum meiri vanskil á Íslandi en í Evrópu

Fjármálaeftirlitið segir íslensku bankana enn standa frammi fyrir margs konar áhættu. Meðal áhættuþátta eru vanskil útlána sem eru mjög há í alþjóðlegum samanburði.

Fjármálaeftirlitið birti í dag yfirlit yfir stöðu og horfur íslensku bankanna. Í því segir að bankarnir standi enn frammi fyrir „margs konar“ áhættu.

Þannig eru vanskil útlána afar há í alþjóðlegum samanburði og takmörkuð reynsla er komin á gæði endurskipulagningar útlána.

Í árslok 2011 var bókfært virði útlána í vanskilum hjá íslensku bönkunum um 13,5 prósent. Hæsta vanskilahlutfallið hjá samanburðarbönkum FME var 5,8 prósent hjá Bank of Ireland. Þetta hlutfall var um 11 prósent hjá írska bankanum í árslok 2010, þannig að vanskil á Írlandi hafa minnkað verulega miðað við þessar tölur.

Einnig stafar bönkunum hætta vegna óvissu um gengislánadóm Hæstaréttar, en bankarnir gjaldfærðu um 67 milljarða króna um áramót vegna fyrri gengislánadóms. Samkvæmt niðurstöðu FME gætu viðbótaráhrif vegna dóms Hæstaréttar í febrúar orðið 78 milljarðar króna, fari svo að öll lán sem óvissa ríkir um verði dæmd ólögmæt.

Heildaráhrif dómsins gætu því orðið 145 milljarðar króna. Bankarnir gætu þó staðist slíkt álag og yrði eiginfjárhlutfall þeirra enn yfir 16 prósent, fari allt á versta veg.

Von er á þremur dómum á næstu tveimur mánuðum frá Hæstarétti sem munu að öllum líkindum skera úr um lögmæti hluta þeirra lána sem enn ríkir óvissa um.

Meðal annarra áhættuþátta í rekstri bankanna má nefna fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem hafa áhrif á útlánasöfn þeirra og einnig felur fyrirhuguð aflétting gjaldeyrishafta í sér talsverða lausafjáráhættu fyrir bankana vegna mögulegs vænts útflæðis innstæðna.

Enn fremur má nefna að þróun efnahagsástands á alþjóðavettvangi og óvissa um möguleika á fjármögnun bankanna utan Íslands getur til lengri tíma haft skaðleg áhrif á rekstur og rekstrarumhverfi bankanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is