Viðskipti Fimmtudagur 10.05.2012 - 08:02 - Ummæli ()

Jóhannes í samkeppni við Bónus – Opnar verslun í sumar undir merkjum Iceland

Jóhannes ætlar að opna verslun undir merkjum Iceland í sumar.

Það harðnar heldur betur samkeppnin á matvörumarkaði í sumar þegar Jóhannes Jónsson, áður kenndur við Bónus, opnar matvöruverslun í Reykjavík undir merkjum Iceland.

Jóhannes undirbýr endurkomu sína á íslenskan matvörumarkað ásamt Malcolm Walker, stofnanda og helsta eiganda Iceland Foods keðjunnar, að því er Viðskiptablaðið greinir frá í dag.

Heimildir blaðsins herma að fyrsta verslunin opni 17. júní, en sjálfur segir Jóhannes það verða síðla sumars. Staðsetningin hefur ekki ekki verið gefin upp.

Það mun ekki fara framhjá neinum þegar það gerist. Það lá alltaf í loftinu að koma til baka eftir að mér var bolað út,

segir Jóhannes. Malcolm Walker staðfestir sömuleiðis að hann ætli að opna verslun á Íslandi ásamt Jóhannesi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is