Seðlabankinn fellst ekki á rökstuðning ríkissaksóknara. Krefst fundar og vill skýringar
Seðlabankinn gagnrýnir harkalega þær ákvarðanir embætta ríkissaksóknara og sérstaks saksóknara að hætta rannsóknum á meintum brotum á gjaldeyrislögum. Segja forsvarsmenn Seðlabankans fullt tilefni hafa verið til þess að kæra málin til lögreglu og hafa óskað eftir fundi með ríkissaksóknara vegna málsins.
Eins og Eyjan greindi frá fyrr í dag, hefur Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir falið lögmönnum sínum að undirbúa skaðabótamál á hendur Seðlabankanum í kjölfar þess að rannsóknum ríkissaksóknara og sérstaks saksóknara á skuldabréfaviðskiptum fyrirtækis í eigu Heiðars Más hefur verið hætt og málið fellt niður. Heiðar Már segist hafa orðið fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni vegna málsins og kæra Seðlabankans og málsmeðferð öll verið með ólíkindum.
Seðlabankinn hóf rannsókn á skuldabréfaviðskiptum fyrirtækisins árið 2010. Rannsóknin varð til þess að fjárfestahópur Heiðars var útilokaður frá viðskiptum með hlutafé í Sjóvá og var hann um nokkurt skeið með réttarstöðu sakbornings vegna rannsóknar málsins.
Fjölmiðlar hafa í dag óskað viðbragða frá Seðlabankanum vegna ákvörðunar ríkissaksóknara og sérstaks saksóknara um að aðhafast ekkert frekar í málinu. Í orðsendingu sem Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri hjá Seðlabankanum hefur sent Eyjunni vegna málsins er ekki að sjá að Seðlabankinn sjái að sér í kjölfar ákvörðunar löggæsluyfirvalda. Þvert á móti virðist Seðlabankinn ætla að knýja saksóknara til að fylgja kærum sínum eftir og er afar óvenjulegt að eftirlitsstofnanir setji ofan í við ákvarðanir saksóknara með þessum hætti.
Í orðsendingu Seðlabankans segir:
Í nóvember 2010 vísaði gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra 4 málum sem vörðuðu skuldabréfaútgáfur sem grunur lék á að færu í bága við ákvæði reglna sem Seðlabanki Íslands hafði sett um gjaldeyrismál. Í september 2011 var efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjórans lögð niður og málin færðust til embættis sérstaks saksóknara.
Í febrúar 2012 tók embætti sérstaks saksóknara ákvörðun um að hætta rannsókn málanna meðal annars vegna erfiðleika við að afla sönnunargagna erlendis frá. Seðlabankinn kærði þá ákvörðun til ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari hefur nú tekið afstöðu í málinu og staðfest ákvörðun sérstaks saksóknara.
Seðlabankinn fellst ekki á rökstuðning fyrir afstöðu embættis ríkissaksóknara og hefur óskað eftir fundi með ríkissaksóknara þar sem farið verður yfir málið. Það er afstaða Seðlabankans að fullt tilefni hafi verið til að vísa málunum til lögreglu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
