Þóra komin í frí frá kosningabaráttu – Bíður eftir barninu
Þóra Arnórsdóttir hefur tilkynnt stuðningsmönnum sínum að hún sé komin í frá kosningabaráttunni. Hún snýr aftur léttari í júní.
Samkvæmt áætlunum ætti barnið að koma í heiminn í dag og ég er þess vegna komin í orlof frá allri kosningavinnu næstu vikurnar. Hér á heimili okkar í Hafnarfirði ríkir gleði og tilhlökkun – og mikil rólegheit,
segir Þóra í pósti sem hún sendir stuðningsmönnum sínum í vikunni. Í bréfinu lýsir hún yfir ánægju með gang mála, enda hefur hún mælst með 45 til 50 prósenta fylgi í skoðanakönnunum. Segir hún þá niðurstöðu sýna að kominn sé tími til að „slíðra sverðin“ og vinna að sátt um forsetaembættið.
Framboð Þóru leggst þó ekki í dvala, heldur munu stuðningsmenn hennar sjá um að halda kosningabaráttunni gangandi.
Í júní er svo stefnan að ferðast vítt og breitt um landið og koma sýn okkar og stefnu á framfæri við sem flesta,
segir í bréfinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
