Föstudagur 11.05.2012 - 08:13 - Ummæli ()

Bjarni Ben: Hrein sögufölsun að Sjálfstæðisflokkurinn gangi aldrei gegn útgerðinni

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það hreina sögufölsun þegar því er haldið fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé á móti veiðigjaldi í sjávarútvegi. Flokkurinn hafi alltaf talað fyrir hóflegu gjaldi.

Þetta segir Bjarni í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið, þar sem kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar eru meðal annars rædd.

Bjarni segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi alltaf talað fyrir hóflegu veiðigjaldi. Eigi hins vegar að gera breytingar á því, þá sé grundvallaratriði að þar liggi að baki trúverðugir útreikningar.

Það er ekki nóg með að ekki hafi verið verið lagt í þá grundvallarvinnu að reikna með sanngjörnum hætti hver auðlindarentan er, heldur hefur verið lagt fram frumvarp sem umsagnaraðilar, meira að segja umsagnaraðilar sem sjávarútvegsráðherrann sjálfur kallaði sér til ráðgjafar, segja að muni leiða til þess að stór hluti útgerðarinnar muni einfaldlega lenda í greiðsluþroti ef þessar hugmyndir ná fram að ganga.

Aðspurður hvort sá dagur muni einhvern tímann rísa að Sjálfstæðisflokkurinn gangi gegn vilja útgerðarinnar, svarar Bjarni:

Bíðum nú við. Það var í tíð Sjálfstæðisflokksins sem veiðigjaldinu var komið á. Það var þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór fyrir ríkisstjórn sem auðlindanefndinni var komið á fót þar sem öllum þessum hugmyndum var komið í faglegan farveg. Og það var Sjálfstæðisflokkurinn, í sinni stjórnartíð, sem hrinti þessum hugmyndum í framkvæmd. Nú leyfa menn sér að segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé á móti veiðigjaldi. Það er ekki bara rangt heldur hrein sögufölsun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is