Sakar 365 um margvíslega og alvarlega misnotkun á markaðsráðandi stöðu
Myllusetur ehf., útgáfufélag Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta, hefur sent kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna framferðis 365-miðla á auglýsingamarkaði. Félagið segist hafa undir höndum upplýsingar sem styðja þessar ásakanir.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt er á vef Viðskiptablaðsins.
Þar segir að 365-miðlar hafi, að mati Mylluseturs, brotið samkeppnislög númer 44/2005 með „margvíslegum og alvarlegum hætti“ í viðskiptaskilmálum sínum.
Háttsemi fyrirtækisins felst m.a. í einkakaupum, tryggðarafsláttum, skaðlegri undirverðlagningu og samtvinnun ólíkrar þjónustu. Samkvæmt 11. gr. samkeppnislaga er markaðsráðandi fyrirtækjum óheimilt að viðhafa slíka háttsemi.
Eru brotin einkum í tengslum við útgáfu á Fréttablaðinu og sölu auglýsinga, segir í tilkynningunni.
Myllusetur ehf. byggir kvörtun sína á upplýsingum sem það hefur undir höndum og hefur félagið gert ítarlega grein fyrir forsendum kvörtunarinnar í erindi til Samkeppniseftirlitsins.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir hdl. á lögmannstofunni Lex gætir hagsmuna Mylluseturs ehf. í málinu. Samkeppniseftirlitið hefur málið nú til skoðunar.
Myllusetur ehf. mun ekki tjá sig frekar á þessu stigi málsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is