Laugardagur 12.05.2012 - 09:12 - Ummæli ()

Enginn miðjuflokkur á Íslandi lengur – Framsókn líkist orðið einnna helst Hreyfingunni

Þorsteinn vill meina að Sigmundur Davíð hafi leitt Framsóknarflokkinn af miðjunni.

Kosningar í dag eru ólíklegar til að leysa úr því átakaferli sem íslensk stjórnmál eru í þar sem ekkert stjórnarmynstur er fyrirsjáanlegt. Þannig er enginn klassískur miðjuflokkur lengur til í íslensku flokkakerfi.

Þetta segir Þorsteinn Pálsson í vikulegri grein sinni í Fréttablaðinu. Þar fer hann yfir öra þróun sem orðið hefur á hinu pólitíska kerfi að undanförnu. Segir hann þriggja flokka samstöðu sem hér hefur ríkt um grundvöll utanríkisstefnunnar  síðustu áratugi úr sögunni.

Ekkert stjórnarmynstur er því fyrirsjáanlegt án þess að utanríkismálin verði fleygur í því holdi,

segir Þorsteinn.

Þá er Framsóknarflokkurinn að breytast úr klassískum miðjuflokki í tækifærissinnaðan flokk sem líkist helst Hreyfingunni. Samfylkingunni hefur þegar verið breytt úr jafnaðarmannaflokki að norrænni fyrirmynd í vinstri sósíalistaflokks. Það er því enginn flokkur á miðjunni og enginn sem liggur að henni frá vinstri. Afleiðingin er sú að rökréttur málamiðlunarkostur fyrir Sjálfstæðisflokkinn til að mynda ríkisstjórn er ekki til.

Segir Þorsteinn að hætt sé við að „pólitíska jafnvægisleysið“ haldi áfram og þingstörfin muni bera þess merki á næstu árum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is