Laugardagur 12.05.2012 - 16:31 - Ummæli ()

Oddviti við ríkisstjórnina: Ég gef hundunum mínum á morgnana

Þórunn Egilsdóttir, oddviti Vopnafjarðarhrepps.

Þórunn Egilsdóttir, oddviti Vopnafjarðarhrepps, hélt athyglisverða ræðu þegar sveitarstjórnarmenn á Austurlandi fengu tækifæri til að funda með ríkisstjórninni. Í ræðu sinni fór hún yfir verkefni sveitarstjórnarmanna í hnotskurn, sem snúa öll að því að standa vörð um grunnþjónustuna.

Ræðan er birt í heild sinni á vef Vopnafjarðar, en í henni kom Þórunn meðal annars inn á ástand heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu. Benti hún á að í ár verða 18 læknislausir dagar á Vopnafirði, sem kemur til með að spara 1,8 milljónir. Eitt sjúkraflug kostar hins vegar hálfa milljón.

Síðustu helgi var læknislaust, 2 sjúkraflug, eitt andlát, kalla þurfti út hjúkrunarfræðing á bakvakt og lækni frá Egilsstöðum.
Vegalengdin í næsta lækni er 135 km.
Það tekur mig 1,5 tíma að aka það.
Við erum að tala um grunnþjónustu.

Oddvitinn kom inn á málefni hjúkrunarheimilisins Sundabúðar, en starfsfólk þess býr við mikið óöryggi að sögn Þórunnar þar sem búið er að skera niður alla þjónustu.

Dæmi: Heimilsfólk fær kvöldmatinn á bökkum, fær ekki að nota matsalinn seinni part dags.
Það er of dýrt.
Ég gef hundunum mínum á morgnana. Rollurnar fá 2 á dag.
Finnum lausn á þessu til framtíðar.
Við erum tilbúin til að taka að okkur reksturinn en honum verða að fylgja nægir fjármunir og raunhæfir útreikingar.
Látið okkur ekki lengur togast á um aurana innan fjórðungsins.

Þórunn benti á að fella eigi niður rekstrarstyrk til áætlunarflugs til Vopnafjarðar og Þórshafnar í árslok 2013 sem eru einu almenningssamgöngur þessara staða. Þá eigi enn eftir klára veginn sem liggur inn í bæinn.

Við erum afar lukkuleg með nýjan veg og fögnum því að þurfa ekki lengur að þræða kindagötur sem kallaðar voru vegir.
En….. verktakinn fór á hausinn og klára þarf verkið.
Við hvetjum ykkur til að ráðast í að gengið verði frá útboðum svo hægt verði að ljúka við innkomu í bæinn og klára það sem eftir er.

Í ræðunni kallaði Þórunn eftir byggðastefnu og hvatti ríkisstjórnina til að hefja sókn í byggðamálum. Það eina sem íbúar á svæðinu fara fram á er að grunnþörfum samfélagsins sé sinnt.

Það þýðir að við höfum lækni, lögreglu, fáum að eldast í heimabyggð við mannsæmandi aðbúnað og að samgöngur séu í lagi.
Hættum að tala um styrki til landsbyggðarinnar.
Hver er líka að styrkja hvern?
Við vitum hvar peningarnir verða til og teljum okkur eiga fyrir þessu öllu.

Ræða Þórunnar í heild sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is