Auglýsingar gegn kvótakerfinu valda deilum – Snúið upp í gagnrýni á útgerðarmenn
Auglýsingar frá útgerðarfyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum um breytingar á kvótakerfinu hafa vakið umtal og deilur. Auglýsingarnar ganga manna á milli á netinu, sem og myndir sem beinlínis eru gerðar til að svara þessum auglýsingum.
Auglýsingar hafa vafalaust ekki farið framhjá neinum sem fylgist sæmilega vel með þjóðmálaumræðunni, en þar má sjá sjómenn, verkalýðsforingja á landsbyggðinni og framkvæmdastjóra hinna ýmsu fyrirtækja segja frá neikvæðum áhrifum breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Sitt sýnist hverjum um auglýsingarnar. Þannig sagði Illugi Jökulsson á bloggi sínu á Eyjunni að auglýsingarnar væru „ógeðfelldar“ og hann fengi á tilfinninguna að verið væri að misnota fólk. Vitnaði hann í orð Gunnars Smára Egilssonar sem sagði á Facebook síðu sinni:
Það er af þessum sökum sem mér finnst ógeðfellt að horfa á auglýsingarnar þar sem fólk, sem þiggur laun sín úr hendi útgerðamanna, vitnar gegn kvótafrumvarpinu. Þær minna á myndbönd þar sem fangar mannræningja lesa upp yfirlýsingar um andstyggð sína á vestrænum stjórnvöldum.
Ljóst er að kostnaðurinn af birtingu auglýsinguna er mikill. Í umfjöllun Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði að birting við hverja auglýsingu, sem birt er fyrir fréttatíma sjónvarpsstöðvanna, sé á bilinu 300 til 400 þúsund. Miðað við fjölda auglýsinga á undanförnum vikum er ljóst að herkostnaðurinn við baráttuna gegn kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar hleypur á tugum milljónum.
Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, segir að þessum fjármunum sé vel varið.
Það eru líka miklir hagsmunir í húfi og mörg störf sem þarf að verja úti á landi. Og ekki bara úti á landi heldur líka hérna í Reykjavík…Í okkar huga var þetta leið sem við töldum að myndi nýtast best til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri,
sagði Jens Garðar í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Þeir sem eru fylgjandi því að breytingar verði gerðar á kvótakerfinu hafa svarað með því að snúa út úr auglýsingum útgerðarmanna og annarra, þar sem gagnrýninni er snúið upp á þá sjálfa. Eyjubloggarinn Lára Hanna Einarsdóttir hefur tekið auglýsingarnar saman og birtir þær á síðu sinni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is