Jóhanna vísar ummælum Ólafs Ragnars á bug – Ætlar ekki að blanda sér í baráttuna
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafnar ásökunum Ólafs Ragnars Grímssonar þess efnis að hún hafi allt frá því hann synjaði Icesave lögunum staðfestingar verið í stríði við hann.
Forsætisráðherra mun ekki blanda sér í kosningabaráttu vegna væntanlegs kjörs til embættis forseta Íslands og mun því ekki bregðast við ummælum sem fram komu í útvarpsviðtali við forsetann í dag,
segir í yfirlýsingu Jóhönnu sem hún sendi út í tilefni ummæla forsetans. Hún segir mikilvægt að baráttan fari vel og málefnalega fram og því sé mikilvægt að umdeildum málum á vettvangi stjórnmálanna sé haldið aðgreindum frá forsetakosningunum.
Í samskiptum sínum við núverandi forseta hefur ríkisstjórnin í einu og öllu fylgt stjórnarskrá og mótuðum stjórnskipunarhefðum. Er því óhjákvæmilegt að vísa á bug öllum ásökunum um að annað hafi átt við í samskiptum ríkisstjórnarinnar eða forystumanna hennar og núverandi forseta.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is