Mánudagur 14.05.2012 - 15:36 - Ummæli ()

Hreyfingin í samstarfi við ríkisstjórnina – Ver hana vantrausti náist samningar um góð mál

„Við höfum aldrei heitið ríkisstjórninni stuðningi gegn vantrausti en höfum stutt öll góð mál óháð uppruna þeirra,“ segja þingmenn Hreyfingarinnar sem í gær funduðu með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í ráðherrabústaðnum.

Á fundinum voru rædd ýmis mál sem þingmennirnir segja brenna á þjóðinni, svo sem tillaga stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá, persónukjör, skuldaleiðréttingar og afnám verðtryggingar.

Andstæðingar ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt Hreyfinguna fyrir þann samstarfsvilja sem hún hefur sýnt ríkisstjórninni.

Boðað var til fundarins eftir að þingmenn Hreyfingarinnar sendu ríkisstjórnarflokkunum bréf þar sem rætt var um hugsanlegt samstarf um tiltekin atriði.

Takist samningar um framgang ofangreindra mála lýsum við okkur reiðubúin að verja ríkisstjórnina vantrausti komi til þess. Við höfum aldrei heitið ríkisstjórninni stuðningi gegn vantrausti en höfum stutt öll góð mál óháð uppruna þeirra,

segir í yfirlýsingu þingmannanna. Þar segir einnig:

Það er að okkar mati löngu tímabært að ríkisstjórnin forgangsraði með ofangreint í huga og forsenda þess að hún að sitja út kjörtímabilið. Okkur finnst brýnt að niðurstaða liggi fyrir í þessari viku.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is