Þingmaður: Val hægri manna á Íslandi er Ólafur Ragnar – Kennir öðrum um ófarir sínar
„Hægrimenn á Íslandi hafa aldrei fengið forseta að sínu skapi. Þar til nú, hugsanlega. Þeir hafa aldrei verið nær því að fagna sigri í forsetakosningum. Þeirra val er Ólafur Ragnar Grímsson,“ segir þingmaður Samfylkingarinnar.
Viðbrögð Samfylkingarfólks við ummælum Ólafs Ragnars í gær, þess efnis að forsætisráðherra sé nú í stríði við forsetann, hefur vakið hörð viðbrögð í herbúðum flokksins. Forsætisráðherra hefur þegar vísað ummælum hans á bug og varaformaðurinn, Dagur B. Eggertsson, svaraði sömuleiðis ásökunum forsetans.
Nú hefur Sigmundur Ernir Rúnarsson bæst í þann hóp, í grein sem hann skrifar á heimasíðu sína. Segir hann „forseta gamla Íslands“ hafa allt á hornum sér og kenni öðrum um ófarir sínar.
Forseti gamla Íslands þarf að líta sér nær. Hann er einfær um óvinsældir sínar. Hann er partur af pólitíkinni. Valdi sjálfur þá leið. Og af því hann er ekki hafinn yfir skotgrafirnar, nýtur hann ekki almennrar virðingar.
Segir þingmaðurinn að Ólafur Ragnar muni verða enn pólitískari á lokametrunum sem hefur í för með sér að virðingin fyrir honum muni „þrengjast enn frekar áður en yfir lýkur“. Forsetinn velji að fara þessa leið og því geti hann ekki kennt öðrum um afleiðingar hennar.
Svo er hitt broslegt: Hægrimenn á Íslandi hafa aldrei fengið forseta að sínu skapi. Þar til nú, hugsanlega. Þeir hafa aldrei verið nær því að fagna sigri í forsetakosningum. Þeirra val er Ólafur Ragnar Grímsson. Aðrir kjósa nýja Ísland …
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
