Viðskipti Þriðjudagur 15.05.2012 - 08:37 - Ummæli ()

„Jón Ásgeir á ekki 365″ – Setti sjálf peninginn í það og þess vegna á ég það

„Jón Ásgeir eða Jóhannes Jónsson eiga ekki í félaginu þó að margir vilji hafa það þannig,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir sem fullyrðir að hvorki eiginmaður hennar né tengdafaðir eigi hlut í fjölmiðlafyrirtækinu 365. Hún segist orðin þreytt á fréttum um eignarhald á fyrirtækinu.

Fréttamaðurinn Ingimar Karl Helgason skrifaði á dögunum grein á Smuguna þar sem hann velti fyrir sér eignarhaldinu á 365. Kom fram í umfjöllun hans að eignarhald á 90 prósenta hlut Ingibjargar skiptist á fjögur félög, þar sem stærsti hluturinn er skráður á Moon Capital, skráð í Lúxemborg. Það félag hefur ekki skilað ársreikningi síðan árið 2008 og því erfitt að skera úr um eignarhald.

Enn fremur vísaði Ingimar í frétt úr Viðskiptablaðinu í apríl þar sem segir að eigandi í hlut Jóhannesar í SMS keðjunni í Færeyjum væri félag sem heitir Apogee ehf. Það félag er aftur á móti í 100 prósent eigu Moon Capital..

Það er raunar aldrei að vita nema þetta skýrist fljótlega, því fyrir Alþingi liggur frumvarp til breytinga á fjölmiðlalögum. Þar á að hnykkja á skyldu fjölmiðla til að upplýsa um eigarhald. Kannski kemur þetta þá upp á yfirborðið,

segir Ingimar Karl. Ingibjörg þvertekur hins vegar fyrir að um einhverja fléttu sé að ræða.

Ég á 365. Ég setti sjálf peninginn í það. Þess vegna á ég það, annars myndi ég ekki nenna að eiga það. SMS kemur mér ekkert við. Ekki neitt,

segir Ingibjörg við Morgunblaðið og segist orðin þreytt á fréttum um eignarhald fyrirtækisins.

Jón Ásgeir eða Jóhannes Jónsson eiga ekki í félaginu þó að margir vilji hafa það þannig.

Ingibjörg fullyrðir að félögin SMS og Apogee komi 365 ekki við á neinn hátt, þrátt fyrir að það liggi fyrir að Moon Captial átti síðarnefnda fyrirtækið sem síðan átti SMS.

Það kemur 365 ekkert við,

segir Ingibjörg og ítrekar aftur að Jón Ásgeir, sem var stjórnarformaður 365 á undan Ingibjörgu, eigi ekki fyrirtækið. Jóhannes hefur ekki viljað tjá sig um eignarhald á 365 og tenginguna við 365.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is