Pétur Blöndal um lánsveð: Er réttlátt að taka eign lífeyrisþega og færa til eignamanna?
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spyr hvort réttlátt sé að taka eign frá lífeyrisþegum og færa til þeirra sem lánað hafa veð í eigum sínum, aðila sem í mörgum tilvikum eru eignamenn og hátekjufólk.
Pétur gerði lánsveð að umræðuefni á Alþingi í dag. Þar vitnaði hann í ummæli Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra sem gagnrýndi lífeyrissjóðina fyrir að beita fyrir sig stjórnarskránni sem rök gegn því að ekki er hægt að færa niður lánsveð.
Pétur benti ráðherranum á að í stjórnarskránni sé eignarétturinn friðhelgur og spurði:
Er réttlátt að taka eign frá lífeyrisþegum og færa til þeirra sem hafa lánað veð í eignum sínum sem margir eru eignamenn og brjóta þannig eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar?
Enn fremur benti Pétur á að allar álögur á lífeyrissjóðina komi til með að lenda á almennum lífeyrissjóðum því réttindi opinberra starfsmanna væru tryggð.
Þess vegna eru svona hugleiðingar eingöngu fólgnar í því að skattleggja verkafólk og iðnaðarmenn en ekki opinbera starfsmenn.
Steingrímur mótmælti þessari túlkun Péturs. Benti hann á að þegar gert var samkomulag við lífeyrissjóði og fjármálafyrirtæki um 110 prósent leiðina árið 2010, hafi forsvarsmenn lífeyrissjóðanna ekki haft áhyggjur af stjórnarskránni, enda var það mat manna á þeim tíma að sú leið hefði í för með sér að allir stæðu betur þegar uppi yrði staðið, þar með talið lífeyrissjóðirnir.
Sagðist Steingrímur eingöngu hafa verið að óska eftir sömu nálgun á málið nú og gert var á þeim tíma.
Pétur sagði reginmun þarna á, því 110 prósent leiðin hafi verið skynsamleg að því leyti að þeir sem skulda umfram það voru ólíklegir til að greiða af því sem umfram var. Aftur á móti séu lánsveð bundin í eignum sem ekki eru mikið veðsettar og í sumum tilfellum óveðsettar.
Þess vegna verði að beita öðrum ráðum til að nálgast vanda lánsveðshópsins, annað hvort með því að láta alla skattgreiðendur standa undir kostnaðinum eða þá að fara í gegnum einstök dæmi, því sumir eigendur lánsveða séu illa settir á meðan aðrir eru vel settir, til að mynda hátekjufólk.
Steingrímur sagði það alls ekki þannig að allir þeir sem lánað hafa veð séu hátekjumenn. Langt í frá allir séu í þeirri stöðu að geta yfirtekið lánin og greitt af þeim.
Eru þetta þó þau lán sem ábyrgt fólk pínir sig hvað mest til að borga og halda í skilum. Slæmt er nú að missa íbúðina undan sjálfum sér en enn verra er að verða þess valdandi að foreldrar, aðstandendur og systkini lendi í erfiðleikum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
