Þriðjudagur 15.05.2012 - 10:06 - Ummæli ()

Segir Ólaf Ragnar hafa fært stjórnarhætti marga áratugi aftur í tímann

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Mynd/Facebook

„Hafi Ólafur Ragnar ætlað að slá aðra forsetaframbjóðendur út af laginu með gauragangi sunnudaginn 13. maí hefur honum tekist það,“ segir Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra, um umtalað viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson um helgina.

Björn segir á heimasíðu sinni að framganga Ólafs hafi verið í ætt við það sem við var að búast.

Ólafur Ragnar hefur ekki tapað neinu af því sem einkennt hefur allan stjórnmálaferil hans. Nú finnst honum að vísu sjálfsagðara og eðlilegra en áður að sér sé sýnd óttafull virðing.

Ólafur Ragnar lýsti því yfir í viðtalinu að hann sé tilbúinn að senda kvótamálið til þjóðarinnar, jafnvel þótt málið sé enn í meðförum þingsins. Björn túlkar orð forsetans sem svo að neitun hans um að skrifa undir lögin séu ekki byggð á skoðun hans á efni laganna, heldur á því hve margir þrýstu á hann.

Stjórnarfarið sem hann boðar minnir á þann tíma þegar menn sendu bænarskrár til konungs. Hann færir stjórnarhætti aftur um marga áratugi í krafti stjórnarskrárákvæðis sem var sniðið að konungsvaldi.

Þetta eru sérkennilegir tímar. Ríkisstjórn skipuð fólki sem stóð að því að gera Ólaf Ragnar að forseta hefur ekki roð við honum. Kjósendur eru hinir einu sem geta haldið aftur af honum. Óljóst er hvaða áhrif offors hans hefur á þá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is