Kostnaður heimila og fyrirtækja gæti aukist vegna áhrifa gengislánadóms – Étur upp áhrifin að fullu
Almennt er talið áhrifin af gengislánadómi Hæstaréttar auki ráðstöfunartekjur heimila og fyrirtækja og ýti undir neyslu. Seðlabankinn telur þó að áhrifin gætu orðið öfug, það er að fjármagnskostnaður heimila og fyrirtækja aukist.
Í grunnspá Seðlabankans er gert ráð fyrir að dómur Hæstaréttar um uppgjör gengislána muni auka ráðstöfunartekjur fjölmargra heimila og fyrirtækja, létta enn frekar skuldabyrði þeirra og auk einkaneyslu tímabundið. Það komi til með að ýta undir hagvöxt.
Miðað við líklegustu niðurstöðu gæti umfang áhrifanna verið nokkurt,
segir í Peningamálum. Þó útilokar bankinn ekki að eftirspurnaráhrif dómsins séu ofmetin þar sem hann gæti rýrt eignasafn lánastofnana verulega og dregið úr væntum framtíðarhagnaði þeirra. Veikari eiginfjárstaða þeirra gæti orðið til þess að draga úr getu þeirra til að lána til nýrra verkefna og skertar tekjur gætu stuðlað að auknum vaxtamun.
Fjármagnskostnaður heimila og fyrirtækja gæti því aukist. Þessi áhrif gætu vegið að nokkru eða jafnvel fullu leyti á móti tímabundnum áhrifum á tekjur þeirra sem dómurinn nær til og hægt á efnahagsbatanum þegar frá líður.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is