Samfylkingarkonur og ritstjóri deila: Gagnkvæmar ásakanir um „drulluskrif“
Samfylkingarkonur í Reykjanesbæ hundskamma ritstjóra Víkurfrétta vegna gagnrýni sem hann setti fram á Oddnýju G. Harðardóttur, fjármálaráðherra. Ritstjórinn svarar þeim fullum hálsi og segist í fullum rétti til að gagnrýna þær.
Stjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ skrifar grein á vef Víkurfrétta í tilefni leiðara ritstjórans Páls Ketilssonar. Ber greinin yfirskriftina Skítadreifari yfir blæðandi heimavöll ráðherra og er tilvísun í leiðara Páls. Í leiðaranum gagnrýndi Páll að lítið sem ekkert hafi verið gert í málefnum Suðurnesja síðan Oddný G. Harðardóttir tók við sem fjármálaráðherra, en hún er sem kunnugt er búsett í Garðinum.
Þeir dreifa drullunni sem eiga hana var það sem okkur datt í hug eftir lestur leiðara auglýsingablaðsins Víkurfrétta síðastliðinn fimmtudag 10. maí. Þar fer ritstjóri blaðsins á kostum og skilur ekkert í að fjármálaráðherra Oddný Harðardóttir, úr Garðinum, hafi ekki rétt hlut Suðurnesjamanna á þeim fjórum mánuðum sem hún hefur setið sem ráðherra. Mikill væri máttur þeirrar manneskju, sem leiðrétt gæti margra ára óráðsíu og skuldasöfnun Reykjanesbæjar. Bærinn er nánast eignalaus og eitt skuldsettasta bæjarfélag landsins,
segir í grein Sveindísar Valdimarsdóttur, Álfheiðar Jónsdóttur, Dagmar Lóu Hilmarsdóttur, Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur og Önnu Pálu Magnúsdóttur. Þær segjast orðnar þreyttar á málflutningi þeirra sem kenna ríkisstjórninni um allt sem misfarist í uppbyggingu á Suðurnesjum.
Menn hreykja sér hátt en þegar illa undirbúin verkefnin falla um sjálf sig benda þeir á ríkisstjórnina og segja hana vilja veg Suðurnesjamanna sem minnstan. Þar opinbera þeir algert getuleysi sitt til að takast á við eigin vandamál.
Í greininni saka konurnar Pál um að hafa ekki aflað sér upplýsinga eða færa rök fyrir fullyrðingum, heldur hafi hann kostið að „níða skóinn af ráðherra með innihaldslausum sleggjudómum“.
Við viljum nota tækifærið og minna ritstjórann á að vandræði Suðurnesjamanna og þá sérstaklega íbúa Reykjanesbæjar hófust fyrir löngu. Það er kominn tími til að hætta allri meðvirkni með meirihluta sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og fara að horfast í augu við stöðuna eins og hún er og viðurkenna hverjum er um að kenna. Það er ekki Jóhönnu Sigurðardóttur, ríkisstjórn hennar eða Oddnýju Harðardóttur að kenna að meirihluti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjanesbæjar er búinn að selja flestar eignir bæjarins og situr í skuldasúpu sem er að drekkja bæjarfélaginu.
Loks benda konurnar á að eitt ár er í Alþingiskosningar og gera að því skóna að Páll hafi með skrifum sínum verið að hefja kosningabaráttuna fyrir hönd stjórnarandstöðunnar.
Páll er skiljanlega óhress með ávirðingar Samfylkingarkvenna og svarar þeim fullum hálsi í athugasemd sem fylgir greininni.
Það er óhætt að segja að Samfylkingarkonur hitti naglann á höfuðið í þessari grein sinni þegar þær segja að þeir dreifi drullunni sem eigi hana. Hér kjósa þær í vörn sinni fyrir fjármálaráðherra að dreifa mikið af drullu yfir ritstjóra blaðsins sem skammaði ríkisstjórn í síðasta ritstjórnarpistli fyrir slaka frammistöðu og fjármálaráðherra úr Garðinum fyrir að láta ekki til sín taka þegar hún komst í einn valdamesta stól ríkisstjórnarinnar.
Páll segir Víkurfréttir ekki málspípu neins flokks og sjálfur hafi hann aldrei skipt sér af pólitísku starfi, né standi það til. Hins vegar mun miðilllinn berjast fyrir betra samfélagi á Suðurnesjum og veita þeim aðhald sem það þurfa. Eins og staðan er nú sé ástandið hvergi verra á öllu landinu en einmitt þar.
Ríkisstjórnin með fjármálaráðherra úr Garðinum getur gert miklu betur í því að koma til móts við erfitt ástand á svæðinu. Það hefur hún ekki gert nema að mjög litlu leyti og um það snerist umræddur leiðari.
Svona drulluskrif Samfylkingarkvenna eru þeim ekki til framdráttar og eru kannski lýsandi dæmi um hvað margir í pólitík leggjast lágt ef þeir eru gagnrýndir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
