Sigurður Einarsson dæmdur til að greiða hálfan milljarð – Eignir hans enn kyrrsettar
Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, þarf að greiða Kaupþingi tæpan hálfan milljarð króna vegna lána sem hann fékk frá bankanum. Stjórn bankans var óheimilt að fella niður persónulegar ábyrgðir af lánum hans.
Þann 25. september 2008, eða rétt fyrir fall bankans, tók stjórn Kaupþings þá ákvörðun að rifta persónulegri ábyrgð á lánum sem starfsmenn og stjórnendur bankans höfðu tekið til hlutabréfakaupa í bankanum.
Slitastjórn Kaupþings rifti þessari ákvörðun bankans og bauð þeim sem tekið höfðu lánin að semja um uppgjör. Ekki féllust allir á þá málalyktan og höfuðu dómsmál í því skyni að fá ákvörðun slitastjórnarinnar hnekkt.
Nú þegar hafa fallið nokkrir dómar í héraði þar sem fallist hefur verið á kröfur Kaupþings og í síðustu viku staðfesti Hæstiréttur fyrsta dóminn. Í máli Sigurðar var einmitt vísað í þann dóm og sagt að sakarefni málanna séu samkynja.
Auk þess sem Sigurði er gert að greiða 496 milljónir króna, ásamt dráttarvöxtum, staðfesti Héraðsdómur Reykjavíkur kyrrsetningargerð sýslumannsins í Reykjavík sem fram fór í júlí 2011. Þá var eignarhluti Sigurðar í Valhúsabraut 20 á Seltjarnarnesi kyrrsettur, sem og jörð hans og sumarhús á Stífilsdal og eignarhlutur í Hvítsstöðum ehf.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is