Miðvikudagur 16.05.2012 - 15:08 - Ummæli ()

Varar við fjölgun ólöglegra innflytjenda vegna lindkindar stjórnvalda. Fá hærri bætur en aldraðir og öryrkjar

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður

Ólöglegum innflytjendum fjölgar nú sem aldrei fyrr. Ástæðan er sú að í nágrannalöndunum hefur sú frétt borist til ólöglegra innflytjenda að hér í landi sé ríkisstjórn og stjórnvöld sem taki á málum af linkind.  Við megum því búast við auknum straumi ólöglegra innflytjenda á næstunni.

Þetta fullyrðir Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður á heimasíðu sinni. Hann segir að Útlendingastofnun hafi átt í erfiðleikum, ítrekað hafi verið ráðist að starfsmönnum stofnunarinnar og störfum hennar af pólitískum sporgöngumönnum ólöglegra innflytjenda.

Ítrekað er haldið fram í umræðunni að við séum vond við ólöglega innflytjendur og beitum þá harðræði. Það er rangt.  Ólöglegir innflytjendur fá 215 þúsund krónur í dagpeninga á mánuði frá íslenska ríkinu og venjulega húsaskjól að auki, en íslenskir öryrkjar fá 173 þúsund og ellilífeyrisþegar 166 þúsund.

Það þarfnast skýringa af hverju betur er gert við ólöglega innflytjendur varðandi lífeyri en íslenska öryrkja og ellilífeyrisþega.

Jón Magnússon segir fólk hrætt við að taka þátt í umræðunni af ótta við að vera stimplað sem rasistar:

Umræðan um þessi mál er  með sérstæðum hætti, þannig að fólk veigrar sér við að blanda sér í hana  opinberlega af því að það vill ekki láta öfgamennina á vinstri vængnum stimpla sig sem vont fólk og rasista. En sú orðræða, nafngiftir og einkunnagjafir er röng og ósæmileg af þeim sem henni beita.

Staðreyndin er sú að við erum að hrekja þúsundir fjölskyldna úr landi. Þar fer dugandi fólk með sérmenntun og fagmenntun af landi brott daglega. Ríkisstjórnin stuðlar að þessum útflutningi Íslendinga með atvinnustefnu sinni.

Á sama tíma stuðlar hún að innflutningi ólöglegra innflytjenda vegna linkindar við að halda uppi lögum og reglum.

Lögmaðurinn bendir jafnframt á að víða erlendis, til dæmis í Bretlandi og Danmörku, sé talað ólöglega innflytjendur sem vaxandi vandamál sem þurfi að bregðast við með virkari úrræðum.

Og hann spyr á heimasíðu sinni:

Viljum við fá holskeflu fjölgunar ólöglegra innflytjenda yfir okkur með þeim síaukna kostnaði sem það hefur í för með sér fyrir skattgreiðendur?

Eða erum við tilbúin til að standa með íslenskum hagsmunum og fá börnin okkar heim og skapa þeim lífvænlega atvinnu og framtíð í landinu?

Sjá heimasíðu Jóns Magnússonar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is