Brottrekinn bæjarstjóri segist vera á launum til ársins 2015

Deilur um málefni grunnskólans í Garðinum urðu til þess að meirihlutinn féll. Bæjarstjórinn var rekinn í kjölfarið. Mynd/nat.is
Ásmundur Friðriksson, sem í gær var rekinn úr starfi bæjarstjóra í Garði, segir að kostnaður við uppsögn sína geti kostað bæinn allt að 50 milljónir króna, enda kveði samningur á um að hann verði á launum til ársins 2015.
Ásmundur var látinn hætta vegna óánægju nýs meirihluta með það hvernig tekið hefur verið á málefnum grunnskóla sveitarfélagsins. Uppsögnin kom honum í opna skjöldu því hann las það fyrst á netinu að slíkt stæði til. Var uppsögnin einn af fjórum dagskrárliðum sem auglýstir voru á aukafundi bæjarstjórnar.
Þetta er bara eins og hjá krökkunum sem segja hverju öðru upp með SMS,
segir Ásmundur við Fréttablaðið sem greinir frá. Hann segist vera á launum fram í febrúar 2015 samkvæmt samningi og að það kosti sveitarfélagið 50 milljónir að efna hann.
Fari allt á versta veg getur nýr meirihluti staðið frammi fyrir því eftir næstu kosningar að vera með þrjá bæjarstjóra á launum,
segir Ásmundur og bætir við að það kosti sveitarfélagið 115 milljónir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is