Páll Óskar: Alþingi forði borginni frá „Hótel Godzilla“ – Nú ætla allir að græða á túristum
„Sú hugmynd að reisa hótel á reitnum er að mínu mati ávísun á eitt mesta og ömurlegasta umhverfis- og menningarslys í sögu Reykjavíkur,“ segir poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson sem vill að Alþingi komi skemmtistaðnum Nasa til bjargar.
10 ára sagaskemmtistaðarins Nasa er senn á enda, en staðurinn hættir starfsemi 1. júní og víkur fyrir nýju hóteli sem þar á að rísa. Nasa hefur undanfarin ár verið einn helsti vettvangur tónleikahalds á Íslandi. Páll Óskar er meðal þeirra sem hafa troðið upp á staðnum, en þar hafa hans víðfrægu Eurovision dansleikir verið haldnir.
Páll Óskar er síður en svo hrifinn af fyrirhuguðum áætlunum og lætur þær skoðanir sínar í ljós í grein sem hann skrifar í Fréttablaðið. Hann hefur áður sagst ætla að hlekkja sig við skurðgröfu komi til þess að húsið verði rifið.
Húseigandinn hefur rift leigusamningi sínum við Ingu á Nasa, en hún hefur staðið vaktina með glæsibrag í rúmlega tíu ár. Inga er ekki á kúpunni og skuldar ekki nokkrum manni krónu. Hún hefur alltaf borgað leiguna fyrst, svo starfsfólki sínu, og látið svo sjálfa sig mæta afgangi.
Páll Óskar segir Reykjavíkurborg og Alþingi hafa lagt mikið fé í uppbyggingu í kringum sögulegar minjar í næsta nágrenni Ingólfstorg. Svæðið sé í raun eitt mikilvægasta sögusvið þjóðarinnar.
Einn og sami maðurinn á nefnilega þetta allt, Landsímahúsið, Nasa og öll þau timburhús sem liggja að Vallarstræti. Þar að auki á hann City Center Hótel við Austurstræti 6,
segir Páll Óskar og bætir við:
Tilfellið er, að svæðið tilheyrir einu mikilvægasta sögusviði þjóðarinnar. Hér er upphaf landnáms að finna, upphaf Reykjavíkur sem iðnaðarbæjar og upphaf nútímaborgar. Er slíkur reitur einkamál Péturs Þórs Sigurðssonar? Ætti svona reitur ekki að vera almenningseign?
Páll Óskar að þarna sé verið að fara eftir deiliskipulagi frá níundaáratugnum sem ákveðið var í borgarstjóratíð Davíðs Oddssonar. Síðan þá hafi margt breyst. Með fyrirhuguðum framkvæmdum sé elstu götum borgarinnar sýnd mikil vanvirðing með risahóteli meðal timburhúsa. Staðreyndin er hins vegar sú að það vantar ekki fleiri hótel í miðbæinn og ekkert getur komið í staðinn fyrir Nasa.
Hótel á þessum reit myndi gnæfa yfir timburhúsunum sem standa við Ingólfstorg eins og Hótel Godzilla. Hótelvæðing höfuðborgarinnar er farin að minna á pitsu- og vídeóleiguæðið á síðasta áratug 20. aldarinnar. Núna ætla allir að græða á túristum. Við þurfum ekki fleiri hótel í miðbæ Reykjavíkur. Við þurfum miðborg handa okkur sjálfum.
Páll Ósar segir „Hótel Godzilla“ einnig hafa áhrif á aðgengi við Austurvöll, þar með talið Alþingi.
Almenningur safnast saman á Austurvelli á góðviðrisdögum. Ekki Hlemmi. Austurvöllur er okkar Ráðhústorg, Times Square og Trafalgar Square. Það er sárt að gróðavon eins manns sé hafin yfir hagsmuni allra borgarbúa.
Páll Óskar leggur til að ríki og borg kaupi húsnæðið og að Húsafriðunarnefnd friði húsið innan sem utan.
Restin af gamla Landsímahúsinu, sem má svo sannarlega flikka upp á og gera fallegra, verði svo notuð undir skrifstofur Alþingis. Mér skilst að þar sárvanti húsnæði. Ég skora því á Alþingi að kaupa gömlu símahúsin. Almennum skrifstofutíma lýkur á sama tíma og hljóðprufur hefjast inni á Nasa. Enginn mun trufla neinn.
Bréfið undirritar Páll óskar sem „gaurinn sem hélt að þetta myndi aldrei gerast á vakt Besta flokksins.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
