Viðskipti Föstudagur 18.05.2012 - 13:16 - Ummæli ()

Vinna að neyðaráætlun um útgöngu Grikklands af evrusvæðinu

Evrópski seðlabankinn og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinna nú að viðbragðsáætlun vegna mögulegrar útgöngu Grikklands af evrusvæðinu. Áætlunin á að tryggja að ekki verði „dómínó-áhrif“, verði það raunin að Grikkir yfirgefi evruna.

Karel De Gucht, viðskiptastjóri framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, staðfestir þetta við belgíska dagblaðið De Standaard. Hann er sanfærður um að evran standi af sér storminn.

Fyrir ári eða einu og hálfu ári síðan hefði verið mikil hætta á dómínó-áhrifum. En nú eru starfandi innan Evrópska seðlabankans og framkvæmdastjórnarinnar viðbragðsteymi sem vinna að neyðaráætlun ef Grikkland hefur það ekki af.

De Gucht hefur ekki miklar áhyggjur af stöðunni á Spáni, þrátt fyrir mikinn óróa á mörkuðum í þessari viku. Matsfyrirtækið Moody´s lækkaði í gær lánshæfiseinkunn 16 spænskra banka og evran hefur ekki verið lægri í fjóra mánuði.

Ég er fullviss um að það verða engin smitáhrif: útganga Grikklands þýðir ekki endalok evrunnar.

De Gucht hefur þó meiri áhyggur af því hvað verður um Grikkland, fari svo að ríkið neyðist til að yfirgefa evruna.

Það þýðir að eftir einhvern tíma verður ekki til peningur til að borga embættismönnum sem síðan geta ekki greitt út lífeyri. Þá er eini kosturinn í stöðunni að láta seðlabankann prenta peninga og þá sitjum við uppi með óðaverðbólgu. Það myndi valda skelfingu í öðrum ríkjum sem nú þegar eru undir þrýstingi.

Framkvæmdastjórinn varar við því að Grikkir hafi ekki mikið svigrúm eftir síðari kosningarnar. ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni ekki slaka á kröfum sínum. Grikkir þurfa að samþykkja 9 milljarða króna niðurskurð í næsta mánuði til að fá neyðarlán frá AGS og ESB. Ef það tekst ekki stefnir í greiðslufall gríska ríkisins.

Ég tel að Grikkland verði áfram innan evrusvæðisins. Ég veit ekki hver útkoman verður í næstu kosningum, en hver veit, hugsanlega þarf að kjósa í þriðja skiptið. Á einhverjum tímapunkti gætum við séð þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið verður um hvort Grikkland verði áfram á evrusvæðinu, þar sem útkoman verður hugsanlega allt önnur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is